verndar- og orkunýtingaráætlun.
Herra forseti. Það er alltaf logn á Húsavík. Hv. þingmenn Bergþór Ólason og Þórarinn Ingi Pétursson hafa báðir komið inn á vindorkuna í sínum málflutningi og einnig hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson þó að hafi mátt greina áherslumun milli þessara ágætu manna. En þegar þeir fóru að ræða þetta — ofsalega líður þessi tími hratt — og ég heyrði þetta heita umræðuefni ámálgað hér þá flaug mér í hug það sem einu sinni var að mér laumað:
Að mér setur kaldan hroll
við heljardíki,
úti stendur andskotinn
í asnalíki.
Þetta er sú tilfinning sem maður fær þegar þetta málefni ber á góma, ekki vegna þess að ég hafi neitt á móti nýtingu á vindinum heldur vegna þeirrar stemningar sem mér þykir stundum einkenna umræðuna þegar þetta fer af stað, að hér sé að myndast einhvers konar lukkuriddarakapphlaup eða kúrekastemning. Nú veit ég ekki hve margar umsóknir liggja inni um að fá að virkja vindinn. Einhvern tímann heyrði ég eitthvað nálægt 30 talsins. (Gripið fram í.) — 40, leiðréttir mig hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson. Þess þá heldur. Þarna held ég að við ættum klárlega að skoða þetta og nýta þetta skynsamlega, fela Landsvirkjun að annast þetta svona til að byrja með því að við getum treyst því hvernig Landsvirkjun gengur um landið. Hún hefur sýnt það margsinnis, ítrekað. Ég held við ættum að fara varlega í þetta. Spurning mín til hv. þingmanns er kannski sú: Getur hann tekið undir með mér í því að við þurfum að fara ákaflega varlega þarna og að Landsvirkjun sé ákveðinn lykilaðili í þessu ferli?