156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir góða spurningu. Ég tek undir með honum hvað það varðar að fela Landsvirkjun þetta hlutverk að fara á undan, vera í fararbroddi meðan við erum að fóta okkur á þessum velli sem snýr að því hvernig við virkjum vindinn. Það eru þessir tveir kostir sem eru nú til umfjöllunar og það er byrjuð vinna við Vaðölduver og síðan Blöndulund í framhaldinu þegar verður hægt að flytja orkuna frá þeim ágæta lundi. En ég er sammála hv. þingmanni hvað það varðar, við eigum að fela Landsvirkjun þetta hlutverk og tek undir með hv. þingmanni, því fyrirtæki treysti ég afskaplega vel til til góðra verka og þetta er flaggskip þjóðarinnar og engu fyrirtæki treysti ég betur til að fara á undan með góðu fordæmi í þessu. Það hefur alveg komið skýrt fram í umræðunni í kvöld að hv. þingmenn sem hafa tjáð sig um vindorkuna vilja fara hægt en örugglega áfram, ekki stíga nein feilspor og við þurfum bara að vanda okkur. En það eru þessir tveir kostir sem talað er um og ég held að við ættum að fela Landsvirkjun að kanna fleiri kosti þar sem vindur getur blásið, hvort sem það er í Þingeyjarsýslu eða annars staðar á landinu. En Landsvirkjun er sá aðili sem ég held, eða ég held ekkert, það er mín skoðun að þeir eigi að halda á þessu fjöreggi hvað það varðar.