156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég fagna svari hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar og tel afar mikilvægt að við felum Landsvirkjun að leiða þessa þróun, ekki síst í ljósi þess að það mátti kannski greina þarna, án þess að ég ætli að leggja hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni orð í munn, áherslumun. Hugsanlega vildi hann fara heldur hraðar. Ég hef í sjálfu sér ekki beina spurningu til hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar um meira hvað varðar vindmyllurnar. En mig langar hins vegar, af því að ég á engan tíma og tala mjög hratt í restina, að spyrja hvað hv. þingmann hvað honum þyki um það að rennslisvirkjun í Bárðardal skuli hafa verið stoppuð.