156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:45]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góða spurningu. Það var hér fyrr í kvöld umræða hjá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni um norsku leiðina, hvernig menn nálguðust þetta. Það var mjög áhugaverð nálgun sem hv. þingmaður tók um sjónarmið Landsvirkjunar og varðandi umsóknarferli og leyfisveitingar sem fylgja öllu þessu ferli. Ég er nú á þeirri skoðun að það sé ágætt að hafa rammann til hliðsjónar sem er líka ákveðið hjálpartæki fyrir pólitíkina vegna þess að í lok dags er það pólitíkin sem ákveður það hvaða virkjunarkostir eru í nýtingu, hverjir eru í bið og hverjir í vernd. Frumvarpið sjálft, ég held að það sé á réttri leið hvað varðar einföldun. Við erum búin að tala um einföldun á leyfisveitingum fyrr í kvöld sömuleiðis þannig að ég held að við skulum nú ekki ganga svo hratt að slá rammann út af borðinu heldur nota hann sem stýritæki eða hjálpartæki því að ramminn styður þá við niðurstöðu pólitíkurinnar þegar að því kemur og það verður alltaf Alþingi sem kemur til með að ákveða hvaða kostir verða settir í nýtingu.