156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:47]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Það ku vera rétt eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson segir að við verðum að hafa rammann. En eins og margoft hefur komið á daginn þá erum við með einhverja tímalínu fyrir framan okkur. Þetta á að taka svona langan tíma og þetta svona langan tíma og það sem á að taka sex ár tekur tólf ár. Svo sitjum við uppi með að það sem hefði átt í rauninni að gerast á kannski tíu árum, allt, þangað til að virkjunin er komin á koppinn eins og með Hvammsvirkjun, að hún er komin 25 ár í ferlinu og ekkert hefur gerst. Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður er frekar til í að skoða það að við segjum bara: Ramminn hefur eitt, tvö ár að klára. Ferlið þarf að vera tvö ár. Það eru fjögur ár og svo er virkjun í fimm ár þannig að þá tökum við allt ferlið og byggjum virkjun á innan við tíu árum frá því að ferlið hefst.