156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir fína ræðu, hann kom víða við og ég verð að taka undir þetta með grænu engin, ég komst í ákveðna stemmningu á þeim tímapunkti. Hér hafa hv. þingmenn Norðausturkjördæmis verið að taka til máls núna, sérstaklega á tólfta tímanum, og þess vegna vil ég aðeins koma inn á Einbúavirkjun. Ég hef talið hana gríðarlega mikilvæga fyrir það svæði og ekki síst vegna mögulegs eyjareksturs bara til að auka öryggi á svæðinu, með tengivirki sem þyrfti að koma að viðkomandi virkjun á því svæði. Það væri hægt að halda langa tölu um það.

Eftir alla umræðuna í dag, en við höfum verið að ræða fyrst og fremst raforkumál í nokkrum mismunandi frumvörpum, þá sjáum við sem höfum tekið þátt í þessu síðustu ár, við sem sátum í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og ef maður hefur hlustað á alla umræðuna í dag, hvað það er búið að vera að reyna að gera mikið og hvað það hefur raunverulega mikið verið forunnið á síðustu árum. Við erum að uppskera svolítið núna eftir mikla vinnu síðustu ára. Eftir þennan dag þar sem umræðan hefur snúist svolítið mikið um þessi mál, hvaða skoðun hefur hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson á því? Við hv. þingmenn í Norðausturkjördæmi höfum setið töluvert af fundum núna í okkar kjördæmi að undanförnu um orkumálin. Þar held ég að við þurfum virkilega að skoða, þó að alltaf þurfi að fara gætilega, vindorkuna á norðausturhorni landsins. Ég held að það gæti eflt það svæði gríðarlega, með uppbyggingu flutningskerfis og annað og sé eiginlega helsta forsenda fyrir uppbyggingu á flutningskerfinu og möskvun kerfisins á norðausturhluta landsins. (Forseti hringir.) Það eru svo stórir og samþættir hagsmunir sem gætu komið inn þar, og þá spyr ég hvaða skoðun hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson hefur á slíkum hugmyndum.