verndar- og orkunýtingaráætlun.
Forseti. Einn svona þankagangur í lokin sem snýr að síðustu árum í umræðu um orkumál á Íslandi. 2016, 2017 var mikil umræða um að það þyrfti bara ekkert að gera, það þyrfti ekkert að byggja upp flutningskerfið, við myndum bara nota þessa byggðalínu, sem að mörgu leyti er orðin mjög illa farin. Það var búið að virkja nóg og átti ekkert meira að gera. En það er eins og það hafi lifnað verulega yfir þessu, það eru nokkur tímamót þegar suðvesturhornið allt í einu kannski áttar sig á því hvað það svæði er raunverulega komið á slæman stað líka, sem við mörg höfum búið við úti á landsbyggðinni um áratugaskeið. Þá lifnaði svolítið yfir umræðunni eins og um flutningskerfi raforku, háspennta kerfið. Það eru nefnilega örfá ár síðan að það var mikil umræða um að það þyrfti ekkert að gera, það væri komið nóg. Eru einhverjar hugleiðingar um þetta frá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni?