verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að beina hér að mér óbundinni spurningu um hugleiðingar. Ég tek alveg undir það að við höfum verið í gegnum tíðina frekar værukær hvað þetta varðar. Það er nú bara þannig í okkar erfðamengi Íslendinga að við í sjálfu sér, ef við erum á tiltölulega góðum stað í lífinu finnst okkar það bara alveg ágætt. Við erum með nægjanlega orku, hún kemur bara alltaf til okkar og þetta gengur sinn vanagang. En það hefur vantað á að horfa lengra fram í tímann, sérstaklega þegar kemur að þessum þáttum. Við höfum litið á þetta sem sjálfsagt mál og að rafmagnið sé bara tilbúið alltaf þegar við þurfum á því að halda. En betur má ef duga skal og það eru bjartir tímar fram undan, trúi ég, hvað þetta varðar og við horfum til þess (Forseti hringir.) að vinna af krafti og keyra þetta bara áfram.