156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin, eða hin mikla verkstjórn eins og hún kallar sig, hélt upp á 100 daga afmælið í vikunni. Það er svo sannarlega hægt að segja að hún gangi hreint til verks þessa fyrstu 100 daga. Eins og sönn vinstri stjórn ræðst hún strax í að hækka skatta og þyngja álögur á fjölskyldurnar og fyrirtækin í landinu. Í nýrri fjármálaáætlun er fagnaðarerindið boðað. Þar er ráðist að grunnatvinnuvegum þjóðarinnar með tvöföldun veiðigjalda, með tilheyrandi afleiðingum fyrir strandbyggðirnar um allt land, og auðlindagjald er boðað á ferðaþjónustuna sem varað hefur við auknum áskorunum í atvinnugreininni. Rétt er að taka fram að þetta gjald mun leggjast jafnt á erlenda ferðamenn sem og Íslendinga alla sem ætla að heimsækja sínar náttúruperlur, og þetta er fyrir utan bílastæðagjöldin. Svo skulum við ekki gleyma blessuðu kílómetragjaldinu sem allir þurfa að borga.

Heimilin og restin af atvinnulífinu sleppur ekki undan fagnaðarerindi vinstri stjórnarinnar. Fella á niður samsköttun milli skattþrepa í tilviki hjóna og sambýlisfólks. Kemur þetta harðast niður á ungum fjölskyldum sem eru í fæðingarorlofi. Fyrir kosningarnar var boðað að loka ehf.-gatinu sem beindist ekki síst að litlum atvinnurekendum eins og pípurum, smiðum, hárgreiðslufólki og öðrum sem eru í litlum atvinnurekstri. En gott fólk, í dag heitir þetta því fína nafni „endurskoðun viðmiðunarreglna um reiknuð laun í atvinnurekstri“.

Virðulegur forseti. Vinstri stjórnin hefur sannarlega sýnt á spilin sína fyrstu 100 daga. En góðir landsmenn, það sem vekur með manni ugg fyrir hönd heimilanna og fyrirtækjanna í landinu er að það eru 1.358 dagar eftir af kjörtímabilinu.