Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil kannski fyrst beina orðum mínum til hv. þm. Jens Garðars Helgasonar. Hér urðu valdaskipti, svo mikið er víst.
Mig langar að vekja athygli þingheims á stöðu fjallaleiðsögunáms á Íslandi sem er í hættu. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hefur sinnt þessu námi mjög metnaðarfullt á undanliðnum árum og útskrifað fjölda fjallaleiðsögumanna sem hafa sinnt þessari viðkvæmu þjónustu víða um land. Nú er svo komið að þetta nám er væntanlega að baki í þeim skóla vegna fjármagnsskorts og við munum þess vegna ekki geta útskrifað fleiri fjallaleiðsögumenn á næstu misserum og jafnvel árum ef ekki verður komið að bót mála.
Hér er orðspor Íslands í húfi. Við þekkjum vítin sem við þurfum að varast í þessum efnum vegna þess að í fjallaleiðsögunámi er fólki er kennt að leiðsegja fólki um jökulsprungur, upp á jökulbreiður og á fjallaskíðum í einhverju hættulegasta fjalllendi landsins. Það er gríðarleg ásókn í þessar ferðir um allt land, ekki bara á jöklum heldur líka upp um öll fjöll, og ásóknin á eftir að aukast jafnt og þétt á komandi árum. Við viljum ekki hætta orðspori Íslands í þá veru að hér verði ekki fullnuma fjallaleiðsögumenn að verki sem geta hjálpað þeim útlendingum og eftir atvikum Íslendingum sem vilja fara á þessar hættuslóðir sér til gamans. Orðspor Íslands er einmitt í húfi. Við viljum að farið sé að með gát og samkvæmt menntun og reynslu. Þess vegna hvet ég þingheim til að hlúa að þessum málum. Við erum að verða eitt vinsælasta ævintýraland þegar kemur að ferðaþjónustu í heimi og þess vegna þarf að huga að náminu sem er grunnur að því að við getum stundað þessa ferðaþjónustu af ábyrgð.