156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Undanfarið hafa verið í fréttum málefni Janusar endurhæfingar ehf. sem er, fyrir þá sem ekki þekkja það, læknisfræðileg heilbrigðistengd endurhæfing fyrir ungt fólk á aldrinum 18–28 eða 30 ára, einkum ungt fólk með alls kyns taugaröskunarsjúkdóma, einhverfu og annað slíkt. Þetta er starfsemi sem hefur verið við lýði síðustu áratugi við góðan orðstír og með alveg ágætum árangri. En nú ber svo við að samningur sem heilbrigðisráðuneytið gerði fyrir tæpum tveimur árum verður ekki endurnýjaður og ef ég hef skilið fréttirnar rétt í raun kannski slitið nokkru áður en samningurinn átti að renna út.

Þetta hefur svo sem komið örlítið til umræðu hér í þingsal en það var ágætur þáttur í Kastljósi Ríkisútvarpsins í síðustu viku þar sem kom fram ágæt greinargerð frá notendum þjónustunnar og hins vegar frá veitendum þjónustunnar, þ.e. frá forstjóra VIRK, sem greiðir hluta af kostnaði við þessa þjónustu, og heilbrigðisráðherra. En eftir að hafa heimsótt þessa endurhæfingu og talað við starfsfólk þar þá finnst mér nokkur upplýsingaóreiða vera í gangi varðandi þetta mál og ekki alveg ljóst af hverju ríkið hefur ákveðið að slíta samstarfi við þessa þjónustu sem hefur í 25 ár veitt þessum ungmennum ágæta þjónustu; og vel að merkja heimilislæknar vísa með tilvísunum ungmennum í þessa endurhæfingu.

Mér hefur kannski fundist skorta á skilning í velferðarnefnd, þar sem ég sit, skorta á skilning meiri hluta nefndarmanna þar, á því að þingmenn hafi áhuga á að fá heilbrigðisráðherra á fund til að ræða þetta mál sérstaklega. Og nú er ég ekki talsmaður þess að þingnefndir taki fyrir öll mál úr fjölmiðlum. En mér finnst mikilvægt að velferðarnefnd taki þetta mál upp, (Forseti hringir.) sérstaklega í ljósi þeirrar upplýsingaóreiðu sem mér virðist vera um starfsemina og slit á samningum ríkisins við þessa starfsemi.