156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Fangar: Í fangelsum eru menn sem langflestir eru t.d. með langa áfallasögu, ADHD eða lesblindu. Þeir eiga sér ekki marga málsvara. Hver vill tala máli ofbeldismanna og annarra brotamanna? Það að dæma menn til fangelsisvistar er auðvitað partur af því að búa í réttarríki. Menn brjóta af sér og samfélagið tekur menn úr umferð. Í þessu felst líklega fælingarmáttur en aðalmarkmiðið ætti að vera að menn kæmu betri út úr fangelsunum heldur en þeir fara inn í þau. Þessir menn eru ekki þarna inni vegna þess að þeir hafi fæðst vondir. Langflestir þessara manna hafa átt flókna og erfiða æsku og ekki fengið þann stuðning sem börn og unglingar þurfa til að verða að góðum þjóðfélagsþegnum. Þessir menn eru líklega þeir sem þurfa mesta hjálp í samfélaginu en um leið þeir sem skaða samfélagið mest. Til mikils er að vinna. Tilfinningar þessara manna eru oft í hnút ofan í læstri kistu og óttinn við að berskjalda sig er ofsalegur, hvað þá í umhverfi eins og fangelsi er. Samt sem áður þrá þeir líklegast ekkert meira en að púsla saman mölbrotinni sjálfsmynd og sjálfsáliti í ruslflokki.

Lítil betrun á sér stað í fangelsum, mest forherðing. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að sá tími sem menn dvelja í fangelsi er eini tíminn sem við höfum fyrir þá til betrunar. Við sem samfélag verðum að hjálpa þessum mönnum að komast út í samfélagið og leggja eitthvað til þess í stað þess að vera byrði á því.