Störf þingsins.
Frú forseti. Undanfarin ár hefur þeim fjölgað mikið sem hafa notið þjónustu heilbrigðiskerfisins og samhliða hefur álag á kerfið aukist. Ferðamenn eru taldir í milljónum og þeim sem hingað hafa flust til lengri eða skemmri tíma hefur fjölgað um tugi þúsunda. Ég lagði því fram fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um hvernig kostnaður og fjöldi þeirra sem nýttu þjónustu bráðamóttökunnar og Læknavaktarinnar á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2022–2024 skiptist, sundurgreint eftir fjölda íslenskra ríkisborgara, erlendra ferðamanna, erlends vinnuafls, hælisleitenda, þeirra sem hafa fengið vernd og annarra hópa. Ég afmarkaði fyrirspurnina við þessa þjónustu heilbrigðiskerfisins svo að hægt væri að svara fljótt en það liggur fyrir að það er gríðarlegt álag á bæði þessi svið. Hæstv. heilbrigðisráðherra óskaði eftir fresti til að svara fyrirspurn minni. Fyrirspurninni var svo svarað í dag. Það er auðvitað í fínu lagi að óska eftir fresti svo að svör verði betri en það veldur mér áhyggjum ef þessar upplýsingar voru ekki tiltækar. Í því ljósi velti ég því upp hversu áreiðanleg fjármálaáætlunin er. Ég myndi telja að eitt af fyrstu skrefunum þegar áætluð eru útgjöld til næstu ára væri að hafa góð gögn undanfarinna ára til að meta þjónustuþörf til framtíðar. Hvernig er það gert öðruvísi en að styðjast við spár um fækkun eða fjölgun hjá hverjum hópi um sig sem nýtir heilbrigðisþjónustu á Íslandi? Einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs er heilbrigðiskerfið. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir viðbótarútgjöldum til heilbrigðismála upp á 6,8 milljarða á næsta ári. Gríðarlegum fjármunum hefur verið bætt í heilbrigðiskerfið undanfarin ár en fáir upplifa sennilega betri þjónustu eða minna álag á starfsfólkið. Það er eitthvað sem er ekki að virka.
Frú forseti. Mig langar að beina því til ríkisstjórnarinnar að vanda ákvarðanatöku og byggja á staðreyndum og gögnum þegar kemur að stærstu útgjaldaliðum ríkisins eins og heilbrigðiskerfinu sem og (Forseti hringir.) stærstu tekjupóstum ríkisins, samanber útflutningsgreinar okkar, ferðaþjónustuna og sjávarútveginn.