Störf þingsins.
Frú forseti. Í dag er 2. maí 2025.
(Forseti (ÞSv): Nei, apríl.)
2. apríl. [Hlátur í þingsal.] Já, ég er kominn aðeins fram úr mér en þetta er samt stór dagur því að voldugasti maður heims hefur útnefnt þennan ágæta dag sem frelsisdag og í tilefni dagsins ætlar hann að útdeila tollum til heimsbyggðarinnar. Það er allt eins víst að við fáum okkar skerf hér, Íslendingar, og þá þurfum við að sýna yfirveguð viðbrögð og halda góðu sambandi við Bandaríkin, reyna að tóna umræðuna niður, það er mjög mikilvægt, og reyna að sigla undir radarinn. Við höfum átt í árangursríku samstarfi við Bandaríkin, eigum viðskiptahagsmuna að gæta og það verður líka að líta til þess að okkar frelsisdagur, 17. júní 1944, var í skjóli Bandaríkjanna, með stuðningi Bandaríkjanna, og við höfum notið stuðnings Bandaríkjanna í gegnum áratugina eða allt frá síðari heimsstyrjöldinni. Þess vegna skiptir miklu máli nú í framhaldinu af þessari umræðu sem fer fram og ef við verðum fyrir því að fá tolla að við sýnum yfirveguð viðbrögð og reynum að rækta sambandið vestur um haf og ná fram jákvæðri niðurstöðu. Það verður ekki gert með upphrópunum heldur því að ná fram góðu samtali og minna á gott og gæfuríkt samband þjóðanna um áratugaskeið. Það tel ég vera leiðina út úr þeirri umræðu sem er og þeirri yfirlýsingapólitík sem er nú höfð í frammi vestra. (Gripið fram í: Taktu upp tólið.)