156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Hæstv. forseti. Á morgun verður mælt fyrir fjármálaáætlun en hún var kynnt í upphafi vikunnar. Þar birtast m.a. áform um aukið öryggi og áherslu á innviði. Eitt af því sem sést, þegar yfirlit yfir fjárfestingar er skoðað, er að verið er að auka fjárfestingar Vegagerðarinnar á næstu tveimur árum um 10,5 milljarða og bæta þannig verulega í. Framlög til Betri samgangna vegna fjárfestinga á höfuðborgarsvæðinu munu standa og eins framkvæmdir við Landspítalann, þjóðarhöll og byggingu nýs fangelsis svo að nokkuð sé talið. Er þá búið að ná utan um þá fjárfestingarþörf eða þær væntingar sem landsmenn hafa um jarðgöng og stórar framkvæmdir hringinn í kringum landið? Svarið við því er nei og þingheimi er ljóst að í fyrirliggjandi drögum að samgönguáætlun, sem lá fyrir þinginu, eru áform um jarðgöng upp á 185 milljarða ófjármögnuð og það má segja að sú samstarfsleið um stórar framkvæmdir, sem sérstök lög voru sett um og boðuð, hafi ekki fyllilega náð tilgangi sínum. Í rammagrein með fjármálaáætlun koma fram skýr áform um að fara nýjar leiðir við fjármögnun til að flýta samgönguframkvæmdum. Það er von mín, og að ég hygg stjórnarmeirihlutans alls, að ná megi breiðu samkomulagi á Alþingi Íslendinga um að finna þá leið, að stofna nýtt félag sem myndi halda utan um þetta og fá af því veggjöld. En þó vitum við að eftir því sem lengra dregur frá höfuðborgarsvæðinu þeim mun líklegra er að það þurfi bein framlög með einstaka framkvæmdum. Það er leiðin. Ég hef trú á því. En til þess þarf að hugsa til langs tíma og hafa breitt pólitískt samráð.