Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á stöðu sem upp er komin víða um land. Þannig er að sums staðar á landinu er helsta leiðin fyrir fólk að útvega sér áfengi að panta það á netinu og fá það sent í matvöruverslanir þar sem það er sótt. Netverslunin sem um ræðir er ÁTVR. Í þessum sal hefur lengi verið þrefað um fyrirkomulag áfengissölu, hvort hún skuli gefin frjáls eða ekki, hvort netverslun eigi að vera heimil eða ekki, hvort megi selja áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar o.s.frv. Þær samræður eru góðar og gildar en að mínu mati einskorðast þær ansi oft við forsendur stærri þéttbýlisstaða. Vínbúðir eru ekki starfræktar á hverjum stað á landinu og geta ástæður fyrir því verið mýmargar. Svo er opnunartíminn víða ansi takmarkaður. Þegar svo ber við og einstaklingur vill t.d. kaupa sér rauðvínsflösku fyrir helgina getur því legið beinast við að panta hana á heimasíðu ríkisverslunarinnar og sækja svo í næstu matvöruverslun sem þá afgreiðir vöruna en er bannað samkvæmt lögum að selja hana. Rekstur verslana í smærri byggðarlögum er erfiður og eru margar sem reiða sig því á rekstrarstyrk frá Byggðastofnun. Sums staðar er Vínbúð þó starfrækt en jafnvel í sama rými og verslunin.
Virðulegi forseti. Ég tel tímabært að taka dreifbýlið með inn í umræðu um áfengissölu hérlendis. Þess væri óskandi ef við tækjum skref í átt að auknu frelsi í þessum málum, þó ekki nema það litla skref að gera verslunum kleift að selja það sem þær í mörgum tilfellum eru nú þegar að afgreiða. Við eigum fordæmi í lögum, t.d. um svæði þar sem ekki er starfrækt apótek og verslunum er heimilt að selja tiltekin lyf. Svoleiðis fyrirkomulag með áfengi gæti jafnvel styrkt rekstrargrundvöll þessara verslana og þannig stuðlað að bættri þjónustu í dreifðari byggðum.