156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

tilhögun þingfundar.

[15:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér hefur verið kallað til atkvæðagreiðslu varðandi það að lengja þingfund umfram það sem þingsköp gera ráð fyrir til klukkan átta í kvöld. Ég fagna því auðvitað mjög, eins og vanalega, að fá að vera hér lengur inn í kvöldið en svona í ljósi þess að það er skipulögð umræða hér varðandi fjármálaáætlun bæði á morgun og á föstudag þá langar mig að fara þess á leit við hæstv. forseta að fá upplýsingar um hversu langt inn í kvöldið forseti sér fyrir sér að halda þingfundi gangandi. Það eru auðvitað risamál á dagskrá í dag; Menntasjóður námsmanna, ramminn, námsgögn, farsæld barna, óteljandi mál, þannig að það væri gott fyrir okkur sem þurfum að skipuleggja okkur gagnvart umræðu morgundagsins og föstudagsins að eiga möguleika á glöggva okkur á því hvað bíður okkar í þessum efnum. Ég mun greiða atkvæði með lengingu þingfundar eins og ég geri alltaf og þingflokkur Miðflokksins sömuleiðis en ég bið hæstv. forseta bara um að auðvelda okkur að skipuleggja okkur hér við þingstörfin.