156. löggjafarþing — 24. fundur, 2. apr. 2025.
tilhögun þingfundar.
Forseti leggur til lengri þingfund en þingsköp leyfa alla jafna, sem sagt lengur en til klukkan átta í kvöld svo að hv. þingmenn geti tjáð sig óhindrað um þau fjölmörgu mál sem hér eru á dagskrá og eru til 1. umræðu í dag og fara síðan að líkindum til nefnda. Ég mun meta það á bilinu átta til tíu í kvöld hversu langur fundurinn þarf að vera. Ef vel gengur þá verður hann örstuttur. Annars gæti ég hugsað mér að vera hér til miðnættis.