156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[15:41]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna. Frumvarpið á sér sögu frá því að lögin voru fyrst endurskoðuð í samræmi við bráðabirgðaákvæði þeirra um að þau skyldu endurskoðuð að þremur árum liðnum frá gildistöku. Mat á áhrifum lagasetningarinnar var framkvæmt og niðurstöðum skilað til Alþingis í formi skýrslu í árslok 2023. Sérstök umræða um skýrsluna fór fram í byrjun árs 2024. Það sem vakti einna helst athygli var að sífellt færri nemendur nýta sér stuðning sjóðsins. Ábendingar voru um að núverandi lánafyrirkomulag henti ekki stórum hluta námsmanna, einkum þeim sem lakast standa og hafa veikasta baklandið. Þannig næði sjóðurinn ekki að uppfylla markmið um að tryggja námsmönnum jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags og félagslegrar stöðu þeirra að öðru leyti, að hann væri sem sagt ekki þessi félagslegi jöfnunarsjóður sem honum var ætlað að vera.

Eins og kunnugt var voru á vorþingi 2024 gerðar breytingar á menntasjóðslögunum þar sem lögfest var heimild námsmanna til að færa sig einu sinni milli námsbrauta án þess að missa rétt til námsstyrks auk þess sem ábyrgðarmannakerfi námslána var fellt úr gildi. Þá voru lögfest ákvæði um að Menntasjóði væri eingöngu heimilt að fjármagna útlán sjóðsins í gegnum endurlán ríkissjóðs en frá gildistöku laganna hafa útlán sjóðsins m.a. verið fjármögnuð af eigin fé eldra lánasafns sjóðsins, þ.e. Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þessu hefur nú verið breytt.

Í kjölfar framangreindra breytinga hófst frekari vinna við endurskoðun laganna á grundvelli greiningarvinnu og niðurstöðu vinnustofu sem haldin var í ráðuneytinu. Nánar er gerð grein fyrir þeirri vinnu í samráðskafla frumvarpsins en um var að ræða vinnustofur með fulltrúum námsmannahreyfinganna, BHM, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins auk starfsmanna og stjórnar sjóðsins og fulltrúa fjármálaráðuneytisins og þáverandi hæstv. ráðherra. Í frumvarpinu voru lagðar til breytingar sem hægt er að ráðast í við núverandi aðstæður en vinnu við endurskoðun laganna er ekki lokið og ég mun koma nánar inn á það síðar í ræðunni.

Förum þá í breytingarnar, frú forseti. Helstar eru þær þessar: Í fyrsta lagi er lögð til breyting á styrkjakerfi námslána þannig að í stað 30% niðurfellingar höfuðstóls námslána í lok náms geti lánþegar nú, sem uppfylla kröfur um námsframvindu, fengið 20% niðurfellingu við lok hverrar námsannar og svo 10% við námslok ljúki þeir námi innan tilskilinna tímamarka. Með því að fá 20% námsstyrk í lok hverrar námsannar er búinn til aukinn sveigjanleiki í kerfið og líkurnar á því að lánþegi hljóti styrk til niðurfærslu á höfuðstól lánsins ásamt áföllnum verðbótum aukast til muna frá því sem er í núgildandi lögum. Með því að halda aftur eftir 10% af námsstyrknum til námsloka er hvatningunni til að ljúka námi í samræmi við kröfur um námsframvindu, viðeigandi prófkröfu, haldið áfram inni en með öðrum hætti en áður.

Í öðru lagi er lögð til breyting á vaxtaviðmiðum námslána á þann veg að byggt er á þriggja ára meðaltali vaxta í stað eins mánaðar. Með þessu fyrirkomulagi munu áhrif stýrivaxtaákvarðana Seðlabanka Íslands á vaxtabyrði námslána minnka til muna frá því sem verið hefur. Breytt vaxtaviðmið standa þeim jafnframt til boða sem þegar hafa tekið lán samkvæmt gildandi lögum, svokölluð H-lán, en heimildin er þó ekki afturvirk og fellur úr gildi 1. janúar 2027. Þá er skýrt kveðið á um að vaxtabyrði námslána hvíli á ríkissjóði fram að námslokum sem í rauninni hefur ekki verið orðað í lögum fram að þessu þó að það hafi í rauninni verið regla.

Í þriðja lagi er í bráðabirgðaákvæði gildandi laga heimild sem eingöngu nær til lána með tekjutengdri afborgun til að greiða fyrst upp H- lán en síðan önnur lán samkvæmt eldra námslánakerfi. Í frumvarpinu er lagt til að þessi heimild nái bæði til lána með tekjutengdum afborgunum og jafngreiðslulána. Hér er sem sagt um það að ræða að heimila fólki að borga af einu láni í einu en ekki tveimur, sem hefur verið íþyngjandi.

Í fjórða lagi er ákvæði um upplýsingaöflun sjóðsins hjá Skattinum rýmkað frá gildandi lögum. Eftir að ákvæði um upplýsingaöflun hjá Skattinum var breytt árið 2020 hefur sjóðurinn ekki getað aflað upplýsinga um tekjur maka vegna beiðna um undanþágu frá afborgunum í eldri lánaflokkum. Þetta hefur leitt til aukinnar vinnu, bæði fyrir sjóðinn og líka lánþega.

Í fimmta lagi er svo lögð til breyting á upphafstíma afborgana námslána þannig að þær hefjist 18 mánuðum eftir námslok í stað 12 mánaða, eða eins árs, eins og nú er.

Virðulegi forseti. Varðandi einstakar greinar frumvarpsins þá hef ég þegar farið yfir efnisþætti 1. gr., um upplýsingaöflun frá Skattinum, 2. gr., sem fjallar um breytingar á fyrirkomulagi á styrkjakerfi, og 3. gr. frumvarpsins, þar sem lagt er til að ríkissjóður beri vaxtakostnað fram að námslokum. Þetta hefur verið svona í reynd, eins og ég sagði áðan, en rétt að koma þessu bara beint í lög. Í 4. og 5. gr. frumvarpsins er fjallað um breytingar á vaxtaviðmiðun námslána eins og ég fór yfir hér á undan. Svo að ég endurtaki það þá mun þessi breyting úr eins mánaðar viðmiði í þriggja ára viðmið draga úr áhrifum stýrivaxtanna fyrir bæði námsmenn og lánþega sjóðsins, sem er mikilvægt í ljósi þess sem gerst hefur á undanförnum þremur árum eða svo. Ég tel þetta vera mjög mikilvæga breytingu.

Í greinunum er líka fjallað um fjármögnunarþátt lánakerfisins og kveðið á um að vextir af verðtryggðum lánum skuli bera sömu breytilegu vexti og kjör og endurlán ríkissjóðs til Menntasjóðs námsmanna, að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána. Með þessu er fjármögnunarþáttur lögbundinn með skýrari hætti.

Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að upphafstími afborgana verði lengdur úr 12 í 18 mánuði, eins og áður er sagt. Framkvæmd þessa 12 mánaða tímabils hefur bara ekki dugað Menntasjóði til að loka skuldabréfum vegna árs svigrúms lánþega til að ljúka námi.

Frú forseti. Ég hef farið yfir helstu þætti frumvarpsins og lagt mig fram um að hafa náið samráð við nemendur við vinnslu frumvarpsins. Einnig hefur auðvitað verið byggt á ágætri vinnu sem hafði átt sér stað í ráðuneytinu áður en ég kom þangað. Þetta eru mikilvægar breytingar og sérstaklega hvað varðar breytingu á styrkjakerfinu því að með því að nemendur fái 20% eftir hverja önn, uppfylli þeir skilyrði um námsframvindu, þá eykst þessi sveigjanleiki og þetta er það sem nemendur hafa kallað mjög hátt eftir. Það er eftir sem áður hvatning til að ljúka námi á réttum tíma. Því er haldið inni í lögunum vegna þessara 10%. Þetta skiptir allt máli. Þá skiptir auðvitað miklu máli að koma til móts við þá nemendur sem hafa fengið þessa brjálæðislegu hækkun á vöxtum vegna stýrivaxta Seðlabankans og hefur bara komið mjög illa niður á þeim. Vaxtaviðmiðið hefur líka verið þannig að stýrivaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa lagst með fullum þunga á námslán. Með því að lengja þetta vaxtatímabil, eins og áður hefur verið sagt, tvívegis minnir mig, þá erum við að milda þessi áhrif.

Við skulum hafa það í huga að þegar verst hefur látið hafa verðtryggðu og óverðtryggðu vextirnir slegið upp í vaxtaþakið, sem er 4% í tilviki verðtryggðra lána og 9% í tilfelli óverðtryggðra lána, og það sjá allir að þetta er verulega vond staða fyrir námsmenn og lánþega sjóðsins og í rauninni ótæk í þeim tilvikum þegar þeir uppfylla ekki skilyrði um að hljóta 30% námsstyrk. Ég trúi því nú að fáum hafi dottið það í hug þegar lögin voru samþykkt í þinginu að þetta yrði staðan þótt vissulega hafi um það verið rætt að þetta gæti haft breytingar í för með sér fyrir lánakjör. Lögin voru, eins og allir hér inni muna, samþykkt í lágvaxtaumhverfi, sem hefur ekki sést hér á Íslandi, eingöngu vegna faraldurs sem gekk hér yfir.

Frú forseti. Lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi 1. júlí 2020 og fólu í sér grundvallarbreytingu á námslánakerfinu. Áður fólst stuðningur ríkisins við námslánakerfið einkum í afskriftum lána sem ekki fengust greidd til baka og niðurgreiðslu vaxta. Í stað þess var komið á námsstyrkjakerfi með innbyggðu hvatakerfi. Markmiðið með breytingunum var að stuðla að auknu jafnræði, gagnsæi og skilvirkni í stuðningi ríkisins við námsmenn. En sagan undanfarin fimm ár sýnir okkur að við þær aðstæður sem sköpuðust þegar verðbólga fór af stað með tilheyrandi vaxtahækkunum þá myndaðist verulega verri staða fyrir námsmenn og lánþega sjóðsins sem kallar á tafarlausar aðgerðir ef ekki á að fara mjög illa fyrir mörgum í þessum hópi. Því er ekki vanþörf á að taka lánakerfið til gagngerrar skoðunar og horfa raunsætt á hvernig kerfið á að vera til framtíðar þar sem horft er á með hvaða hætti efnahagslífið getur sveiflast hér á landi umfram það sem það kannski er mjög víða.

Við þekkjum að lánþegar í húsnæðiskerfinu hafa átt í vandræðum með að meta hvort rétt sé að skilmálabreyta lánum sínum þegar verðbólga og vextir fara af stað. Það getur verið flókið hagsmunamat. Venjulega eru þeir lánþegar orðnir eldri og reyndari til að leggja mat á stöðuna. Því verður varla jafnað við þá stöðu þegar námsmenn eru að ljúka námi og þurfa samkvæmt gildandi lögum að átta sig á því innan 12 mánaða frá því að námi lýkur hvaða skilmála sé best að hafa á námslánum sínum. Það hlýtur að hjálpa við slíkt mat að lánakerfið sé bæði auðskilið og fyrirsjáanlegt.

Frú forseti. Námslánakerfið er og hefur verið gríðarlega mikilvægt til að jafna stöðu og möguleika fólks til æðri menntunar. Það er mikilvægt að styðja vel við kerfið og tryggja þeim sem þurfa á því að halda og geta ekki treyst á utanaðkomandi stuðning að hér sé lánasjóður sem er raunverulega félagslegur jöfnunarsjóður. Ég vona að frumvarpið fái góða umræðu hér í dag og í meðförum þingsins í framhaldinu. Þetta er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál fyrir þjóðina og þess vegna nauðsynlegt að opin og hreinskilin umræða um það hvernig hægt sé að bæta lánakerfið í þágu nemenda verði til að hægt sé að takast vel upp.

Hér er aðeins um að ræða lítils háttar breytingar sem nauðsynlegt er að ráðast í vegna þeirrar stöðu sem hefur skapast á síðustu árum. Það er hins vegar eftir sem áður algjörlega nauðsynlegt að við förum í heildstæða endurskoðun á lögunum, helst á næsta vetri, og þar verður einfaldlega allt að vera undir. Þó svo að þessar áætlanir á sínum tíma hafi verið varðaðar mjög góðum ásetningi og vel getur verið að það sé hægt að útfæra það verðum við bara kalt og raunsætt að horfast í augu við að efnahagslífið hér hegðar sér að einhverju leyti með öðrum hætti heldur en mjög víða annars staðar. Mér finnst það skipta máli að námsmenn geti helgað sig námi. Auðvitað á hver og einn að fá að ákveða hvort hann vinnur með námi eða ekki en við eigum ekki að setja upp kerfi þar sem þú ert neyddur til að vinna með námi. Þetta eru dýrmætir tímar. Þetta er samfélag sem við finnum ekki víða, menntastofnanir. Ég held að það sé gott að ungt fólk geti tekið sér 3–5 ár í að helga sig sínu viðfangsefni og ég held að þau komi betur undirbúin út í veröldina. Ég held að við þurfum á því að halda.

Við vitum að hugvitið og nýting þess er í auknum mæli grundvöllur þess að við getum aukið verðmætasköpun í landinu, bæði með því að auka enn verðmæti þeirrar vöru sem við erum þegar að framleiða, hvort sem það er fiskur eða annað, en líka að nýta okkur þá möguleika sem felast í þessari stafrænu þróun þar sem vara er ekki lengur efniskennd, þar sem við erum ekki háð fjölda handa eða fjarlægð frá mörkuðum, þar sem dýrmæt vara getur ferðast á sekúndubroti hinum megin á hnöttinn og það er hægt að framleiða hana í óendanlega miklu magni. Þetta er sú framtíð sem Íslendingar ætla að stefna að og ég veit að þetta er ekki ásteytingarsteinn hérna í þinginu. Ég held að við séum öll á þeirri skoðun. Okkur kann að greina á um hvernig við eigum að ná þangað en við erum alveg örugglega öll á þeirri skoðun að þetta sé leiðin sem við eigum að fara fram veginn.

Þar sem ég hef gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum þá legg ég til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu.