Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa framsögu. Ég hef ýmsar spurningar um þá útfærslu sem liggur fyrir þinginu, kannski í fyrsta lagi um það af hverju ekki liggur fyrir betra kostnaðarmat á þessum breytingum með frumvarpinu þar sem dýrmætur tími og vinna fór í það á síðasta kjörtímabili að geta einfaldlega lagt kostnaðarmat á þær breytingar sem kallað var eftir á lögunum, sem að vissu leyti voru ekki útfærðar þrátt fyrir að ítrekað hafið verið kallað eftir miklum breytingum á umhverfinu sem ég tek undir að voru nauðsynlegar. Þá velti ég fyrir mér hvort hæstv. ráðherra geti aflað betra kostnaðarmats á þessum breytingum sem lagðar eru fram. Í öðru lagi velti ég fyrir mér orðum hans um breytingarnar á vaxtaumhverfinu þar sem þetta hefur mjög ófyrirséð áhrif á lánþega. Ég tek undir að það þarf einhvern veginn að mæta þeim hópi sem fellur á milli skips og bryggju en eru þessar breytingar tímabundnar (Forseti hringir.) eða sér ráðherrann fyrir sér að vaxtaumhverfi námslána til lengri tíma sé betur farið með þessum hætti?