156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[15:58]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Svo ég svari kannski síðustu spurningunni: Nei, það held ég að verði bara að fara mjög vel yfir þegar við förum í þessa heildarendurskoðun. Það eru augljósir kostir við þetta fyrirkomulag núna þar sem vextir hafa verið upp undir 10%, 9,25% stýrivextir, en ef við færum aftur í lágvaxtatímabil þá augljóslega er þetta óhagstætt og því er það eitthvað sem þarf að skoða.

Varðandi fjármögnunina þá er búið að leggja mat á þetta. Þetta er ekki dýrt, alls ekki. Fyrsta aðgerðin er um 160 milljónir og það kostar svo 590 milljónir að breyta vaxtadótinu. Það er mikilvægt að taka það fram að sá kostnaður, hann er ekki nýr kostnaður (Forseti hringir.) fyrir ríkissjóð. Því er búið að leggja kostnaðarmat á þetta og það voru aðgerðir sem við hefðum viljað fara í (Forseti hringir.) sem við töldum ekki vera svigrúm fyrir núna.