156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:00]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ágætt að heyra það enda kemur þessi breyting verr út fyrir 60% lántaka, eins og segir svo sem í greinargerð með frumvarpinu. Mig langar þá að spyrja hæstv. ráðherra um annað. Mikið af gagnrýninni sem kom á frumvarpið sem samþykkt var á þarsíðasta kjörtímabili um heildarbreytingar á sjóðnum var um það að flækjustigið væri of mikið. Stofnunin hefur kvartað gríðarlega undan flækjustigi kerfisins. Mig langar að spyrja hvort breytingin varðandi námsstyrkjakerfið og styrkina auki á það flækjustig og hvort sjóðurinn ráði einfaldlega við það. Að því sögðu þá langar mig í öðru lagi að spyrja hæstv. ráðherra hvort kostnaðurinn við stofnunina sjálfa sé ásættanlegur, hvort þessi ríkisstjórn, sem þykist a.m.k. vera tilbúin í einhverjar hagræðingaraðgerðir, væri opin fyrir því að útvista að hluta til námslánum og velta því upp (Forseti hringir.) hvort þau ættu einfaldlega heima annars staðar þannig að hægt væri að minnka báknið og hagræða fyrir ríkisstjórnina í þessum efnum.