Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Það voru allnokkrar dylgjur í orðalaginu sem ég kann nú ekki við, ekki síst vegna þess að hv. þingmaður ber kannski einhverja ábyrgð á sumu af þessu. Það er ekki rétt að þetta komi verr út fyrir námsmenn. Það er hins vegar þannig að vegna þess hve vextir ruku upp á síðustu árum þá hafa þau 50% sem ekki náðu því að fá námsstyrkinn lent í miklu meiri vandræðum en ella og jafnvel þau sem fengu námsstyrkinn að fullu eru samt sem áður að borga meira en þau hefðu gert í gamla kerfinu. Ég tók það fram að það væri góður ásetningur sem lægi að baki þessu blandaða láns- og styrkjakerfi og það er sjálfsagt að reyna að þróa það áfram. Við þurfum hins vegar að horfa kalt á það hvort það er hentugt fyrir aðstæður eins og á Íslandi eða ekki, vegna þess að þau orð sem féllu þegar þetta var samþykkt á sínum tíma um að það væri viðvarandi lágvaxtatímabil á Íslandi í vændum reyndust ekki rétt.