156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef kannski ekki forsendur til að fara djúpt ofan í þessar tæknilegu útfærslur hér, enda hef ég kannski minni áhuga á því en öðru. En mig langar þó aðeins að spyrja hæstv. ráðherra út í ummæli sem hann lét falla hér í andsvari á undan mér sem laut að því, ef ég skildi hann rétt, að þetta frumvarp sé til þess að mæta hávaxtaumhverfi í dag. Ef ég skildi hæstv. ráðherra þá gæti þetta verið óhagstætt, hann sagði að það yrði óhagstætt ef vextir lækkuðu. Ef hann gæti aðeins bara útskýrt hvað hann var að fara með þessu. Mig langar líka samt að fá að spyrja hann hér — það er svo sem gert ráð fyrir kostnaði upp á rúman hálfan milljarð á ári, sem ég átta mig ekki á og hef ekki forsendur til að meta hvort er kannski svolítið vanmat. En mig langaði — jæja, og nú tíminn er liðinn. Ég kem þá í annað andsvar með meira.