156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:04]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er alveg flókið en þetta er auðvitað hugsað fyrst og fremst til að auka fyrirsjáanleika þannig að ef stýrivextir hækka mjög skarpt eða lækka mjög skarpt dempi þetta áhrifin. Þannig að ég sagði að örugglega við einhver tilvik þar sem vextir fara bara mjög langt niður, úr því að vera háir, þá geti bara vel verið að þetta komi ekki eins út og ef þeir fara upp. Þetta er bara til að auka fyrirsjáanleika. Seinni spurningin var? (Gripið fram í.) Það var ekkert önnur spurning.