Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Ég er svo sem engu nær um hvort þetta yrði óhagstætt fyrir ríkissjóð eða nemendur. Það var það sem ég vildi spurt hafa um að þessu leyti. Svo langaði mig að spyrja um annað, hvort það hefði ekki komið til greina í þessu frumvarpi að taka á því sem mér finnst nú brenna svolítið við og það er að jafna aðstöðu námsgreina. Þá hef ég sérstaklega í huga starfsnámsgreinar eða verknámsgreinar en nemendur þessara greina virðast ekki samkvæmt lögunum um Menntasjóðinn hafa tækifæri til þess að fá námslán fyrir verknámi. Við þekkjum þennan mikla aðstöðumun sem blasir við ef við tökum bara til þessara mikilvægustu atvinnugreina okkar Íslendinga, sjávarútvegsins og ferðaþjónustunnar, þar sem nemendur í sjávarútvegi þurfa að kosta held ég 28.000 kr. á ári til að verða skipstjórar en þeir sem hyggjast renna stoðum undir ferðaþjónustuna þurfa að reiða fram 15, 16, 17 milljónir fyrir sitt nám. Hefði ekki komið til greina að hafa í þessu frumvarpi og taka á þessum aðstöðumun þannig að hægt væri að veita námslán til þessara mikilvægu starfsnámsgreina?