Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Það kemur í rauninni þessu frumvarpi ekkert við. Hér er bara verið að fjalla um kjörin á þeim lánum sem eru tekin í núverandi menntakerfi. Það er alveg sjálfsagt mál og er til umræðu, held ég, flesta daga, a.m.k. flesta mánuði, innan skólakerfisins, innan ráðuneytisins hvaða námsframboð á að vera til staðar, með hvaða hætti, hvenær og hvernig. Og það er umræða sem mér finnst alveg full ástæða til að eyða bara talsverðum tíma í hér, þannig að ég tek undir það. En þetta fjallar sem sagt í rauninni um þau lán sem fólk hefur verið að taka og mun taka á næstunni.
Varðandi það hvort þetta sé óhagstætt fyrir ríkið eða óhagstætt fyrir nemendur þá finnst mér það fara ágætlega saman. Það sem er hagstætt fyrir nemendur held ég að verði á endanum mjög hagstætt fyrir ríkið vegna þess að hér erum við að fjárfesta í verðmætasköpun til framtíðar.