Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Það er forvitnilegt að fylgjast með framsögu og umfjöllun hæstv. háskólaráðherra um þetta mikilvæga mál sem háskólarnir eru. Það er auðvitað stærri og meiri umræða sem við þurfum að taka um háskólana í víðara samhengi. Ég tala hér um verðmætasköpunina sem við erum að fjárfesta í, hvort allt sé þetta verðmætasköpun eða hvort eitthvað sé jafnvel til ógagns, en það er efni í síðari umræðu. Ég vildi beina því og spyrja hæstv. háskólaráðherra til að byrja með hvort það sé einhver hugsjón sem liggi að baki um hlutfall þessara eitthvað í kringum 20.000 háskólanema sem nú eru á Íslandi, ef ég skil gögnin rétt, um það hve margir taki þessi lán núna, og er stefnt að því — ég veit að fólk segir að það séu bara þeir sem þurfa o.s.frv., en er einhver hugmynd að því hversu margir væri æskilegt að tækju námslán?