Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að það væri áhugavert að taka breiða og stóra háskólaumræðu um það hvað fólk væri að læra, hvernig og af hverju, hvort það gerði gagn eða ógagn. Ég er reyndar á þeirri skoðun að þekkingaröflun sé aldrei til ógagns. Það getur vel verið að hún vegi misþungt í mælingum í efnahagslífinu en ég held að fyrir hvern og einn sé hún alltaf mannbætandi. Ég er viss um að hv. þingmaður er sammála mér um það. Við getum hins vegar alveg örugglega tekið umræðu um og það væri gagn að því að ræða með hvaða hætti við ættum að hvetja fólk með markvissum hætti í ákveðnar greinar eða skapa hvata. Það er mikið talað um þessar STEM- eða STEAM-greinar í dag sem eru tæknigreinar sem við þurfum á að halda og of fáir sækja í. Mér finnst sjálfsagt að taka þá umræðu. En ég er ekki með tölur um það hversu margir ættu að taka námslán, hvernig það væri nákvæmlega í tölum, en ég veit að þeim hefur þó farið fækkandi og er hlutfallið langt undir hinum Norðurlöndunum.