156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:10]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hæstv. háskólaráðherra fyrir svarið. Ég tek að vísu fram að ég er ekki alveg sammála því að námið sé alltaf til gagns. Við í Miðflokknum erum með hugtak sem við köllum skaðmenntun og ég held að það fari eitthvað fyrir henni í háskólum landsins. Ég held að það þurfi að segja alveg hreint út. Þá er ég ekki að tala um gagnlegt og gagnlegt á þessa hefðbundnu mælikvarða. Ég er hugvísindamaður sjálfur og átta mig alveg á því að gagnslaust nám getur verið mjög gagnlegt. Þetta er auðvitað flókin umræða eins og heyra má á þessum djúpu þversögnum sem vella upp úr mér.

Fyrst við erum að ræða efni frumvarpsins þá hef ég áhuga á að spyrja út í þessi hlutföll. Nú er verið að fara frá því að veita 30% námsstyrk við lok náms yfir í 10% námsstyrk við lok náms og 20% í lok hverrar annar. Hvaða hvata teljum við okkur vera að skapa með þessu? Er það að fólk lengi í háskóladvölinni, eins og við köllum hana, eða klári fyrr? Hverjir verða hvatarnir? Ég er forvitinn um það. Ekkert hlaðin spurning heldur einskær, einlæg, barnsleg forvitni.