Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Ég hlakka til frekari umræðu um gagn og ógagnsemi náms. Námsmenn kölluðu mikið eftir því að meiri sveigjanleiki væri í kerfinu. Það er rétt að í upphafi var þetta þannig að ef þú kláraðir nám á tilsettum tíma fékkstu 30%, annað var lán. Þetta getur verið mjög óhentugt ef það koma upp erfiðar aðstæður. Fólk getur eignast börn, veikst og ýmislegt getur mælt gegn svo hörðum og ströngum viðurlögum, sérstaklega vegna þess að ef þú missir þetta þá ertu augljóslega, eins og niðurbrot sýnir núna, í mikið verri stöðu en í gamla kerfinu. Þess vegna viljum við að þú hafir þennan möguleika, að þú fáir 20% eftir hverja lokna önn. Við teljum að 10% í lokin nægi til þess að skapa þennan hvata og þegar fyrra fyrirkomulag var sett á laggirnar þá reiknuðu menn með að 90% námsmanna myndu fá þennan styrk. Reyndin er að það eru aðeins 50% sem þýðir að það er langt frá því að markmiðin hafi náðst. Þar skapaðist líka svigrúmið fyrir þessa aðgerð sem mun ekki kosta ríkissjóð neitt umfram það sem ætlað var á sínum tíma.