Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra, Loga Einarssyni, fyrir hans framsögu í þessu máli og aðeins blanda mér í umræðuna um gagnsemi náms vegna þess að nám er oft hlutlaust en það er bara hvernig maður notar námið. Byssur gera ekki mikið einar og sér en þær geta aflað okkur matar og drepið fólk, þannig að þetta skiptir allt máli. Við sjáum bara t.d. þekkinguna sem varð til þegar menn voru að kljúfa atómið, það er hægt að nota það sem sprengju eða líka þá sem orkugjafa. En það sem mig langar svolítið að spyrja hæstv. ráðherra um eru þessar prósentur, það eru 20% við lok hverrar annar og 10% við lok náms. Hver er hans sýn á hvort það hefði ekki átt að snúa þessu við og hafa þetta 10% við lok hverrar annar og fá stærri gulrót við lok náms þannig að líkurnar á því að menn ljúki námi yrðu meiri?