156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:14]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Jú, það hefði örugglega verið hægt að útfæra það þannig. Það má vel vera að það hefði náð frekari markmiðum. Það getur líka vel verið að það geri það ekki. Við munum auðvitað bara horfa á þetta, sjá reynsluna af þessu og munum þá breyta því ef hún er ekki nógu góð. Varðandi það sem hv. þingmaður ræddi um hvernig nám getur annaðhvort leitt til góðs eða ills þá er það algjörlega hárrétt. Þess vegna hlýtur hv. þingmaður bara að styðja mig í því að í grunnskólum og framhaldsskólum fáum við öll undirstöðukennslu í siðfræði, heimspeki og slíkum hlutum af því að þekking í sjálfu sér, hún er til góðs en auðvitað er hægt að nota hana til góðs og ills. Það vitum við en það er svona breyskleiki mannsins og veruleikinn sem við lifum í. Reynum bara að koma í veg fyrir það með því að kenna fólki gott siðferði.