156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar og tek undir það að auðvitað skiptir siðferði og slíkir hlutir máli. En það kemur venjulega með uppeldinu því að viðhorf eru málefni sem koma á löngum tíma og það er erfitt að kenna slíkt. En það sem mig langar að koma að hér er að ég heyrði á tali hæstv. ráðherra þegar hann var í framsögunni að hann væri ekki endilega allskostar ánægður með það kerfi sem við erum að vinna eftir núna — það er svona verið að lappa upp á það — en hvað honum finnist, hvað sé hægt að bæta í því og hvort kerfið fyrir 2020 hafi bara mögulega verið betra. Kannski að fá hans skoðun á því.