156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:16]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Nei, ég sagði það í ræðunni og held ég líka í andsvörum við hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur að ég held að þessi breyting hafi verið vel hugsuð og skynsamleg nálgun á margan hátt og kannski í takti við það sem er á hinum Norðurlöndunum. En þessar óvæntu efnahagsssveiflur síðustu ára eyðilögðu dálítið ávinninginn sem hefði getað orðið af þessu. Við þurfum bara að skoða í því ljósi: Getum við treyst á sama kerfi og Norðurlöndin eða verðum við kannski að fara í fyrra horf eins og hv. þingmaður sagði? Það er bara eitthvað sem við munum skoða með opnum augum og allur þingheimur

Varðandi það að uppeldi skipti máli, það skiptir held ég öllu máli. En að það sé ekki hægt að kenna í rauninni — ég áttaði mig ekki á því hvað hv. þingmaður var að fara út í. Ég trúi því að það fæðist allir góðir og við verðum svona verri og verri á lífsleiðinni og við skulum bara reyna að afstýra því.