156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:17]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra hefur hér mælt fyrir frumvarpi sem er að mörgu leyti til mjög skiljanleg viðbrögð við því kerfi sem nú er uppi. Ég verð að byrja á að fá að leiðrétta þann misskilning í andsvari, þar sem hæstv. ráðherra hlustaði kannski ekki nægilega vel á seinna andsvar mitt, að ég væri að segja að frumvarpið kæmi illa út fyrir nemendur. Ég var alls ekki að segja það. Ég sagðist einmitt skilja það að þessi breyting um vextina væri kannski eðlileg til að mæta ákveðnum hópi sem er að lenda í þannig kröggum sem ekki voru séðar fyrir vegna vaxtaumhverfis. En það væri samt sem áður staðreynd, sem stendur í þessu frumvarpi, að ef þetta væri langtímaákvörðun fyrir framtíð kerfisins, sem var spurning mín til hæstv. ráðherra, þá hefði ég áhyggjur enda kæmi þetta í heild sinni, eins og hæstv. ráðherra nefndi, verr út til lengri tíma ef vextir eru orðnir lægri og vaxtaumhverfið betra.

Í heild sinni er auðvitað þessi málaflokkur um stuðningsumhverfi námsmanna afar áhugaverður og hér er orðin ansi löng saga um umræður þings, þingheims og löggjafarvaldsins til að reyna að hafa umhverfið með þeim hætti sem þekkist á Norðurlöndunum, til að auka samkeppnishæfni okkar, til að styðja betur við stúdenta og til að bjóða upp á þannig kerfi að við styðjum fólk í því námi sem það kýs en á sama tíma geti það fengið lán og einhvern styrk á móti. Það, verð ég að segja, virðist hafa verið flóknara verkefni fyrir löggjafarvaldið en ég vænti nokkurn tímann. Hér hafa ráðherrar komið með frumvörp í gríð og erg. Hæstv. fyrrverandi ráðherra, Illugi Gunnarsson, og síðar hæstv. fyrrverandi ráðherra Lilja Alfreðsdóttur, komu með heildarbreytingar sem unnið var að allt kjörtímabilið. En svo virðist að þegar náðist fram heildarbreyting, sem hafði nýtekið gildi þegar sú sem hér stendur kom að þessum málum, og um leið og reyndi á þá heildarbreytingu sem þingið samþykkti nú saman þá er verkefnið ekki bara að laga það aðeins heldur þarf önnur heildarendurskoðun að fara fram. Þetta hlýtur að vekja upp einhverjar spurningar um það hvort kerfið og fyrirkomulagið yfirhöfuð sé eitthvað sem við erum ánægð með eða náum að gera það þannig. Við sjáum að það eru ekki síst þeir sem komu að þeirri heildarendurskoðun sem núverandi lagaumhverfi byggir á sem eru háværustu hóparnir sem eru óánægðir nú með kerfið. Það er þess vegna sem ég held að við þurfum að geta tekið hér umræður við hæstv. ráðherra um þessa framtíðarendurskoðun og hvernig við ætlum að sjá þessi mál til lengri tíma, enda algerlega augljóst að núverandi umhverfi er ekki boðlegt, hvorki fyrir nemendur né ríkissjóð. Það er eiginlega miður að slík lagasetning hafi tekið heilt kjörtímabil, það var í gríðarlega miklu samráði við stúdentahreyfingar og nefndin vann mikið starf en niðurstaðan er, eins og raun ber vitni, ekki góð. Þá hljótum við að velta upp þessum spurningum sem ég reyndi að spyrja hv. þingmann um: Er fyrirkomulagið í heild sinni heppilegt eins og það er í dag?

Rekstur sjóðsins er 20% af þeim fjármunum sem fara í stuðning við námsmenn. Það er gríðarleg yfirbygging, gríðarlegur kostnaður sem fer í rekstur þessarar frekar litlu stofnunar. Þá verður bara að vera hægt að spyrja erfiðra spurninga: Er ríkið kannski ekki best til þess fallið að vera í þessum lánum? Væri hægt að búa til skýrar reglur og umhverfi, minni hóp sem væri með umsýslu en myndi útvista verkefnum til fjármálastofnana sem eru í þessu alla daga og hafa mun meiri þekkingu og reynslu til þess? Þetta eru spurningar sem ég held að við komumst ekkert hjá að ræða af því að það gæti stuðlað að sparnaði í ríkisrekstrinum, við værum að nýta sérhæfingu og reynslu fjármálastofnana, við værum að nýta opinbert fjármagn betur og gætum stutt nemendur með betri hætti af því að fjármagnið myndi raunverulega fara til nemenda en ekki í yfirbyggingu.

Það var þess vegna sem ég ákvað að reyna á það hér að heyra í hæstv. ráðherra um svona hugmyndir eftir að hann hefur kynnt sér stöðu námslánakerfisins. Staðan er þannig að við erum komin í þriðja eða fjórða sinn með það fyrir framan okkur í upphafi kjörtímabils að það þurfi að fara fram heildarendurskoðun og sagan segir okkur að hún taki eiginlega allt kjörtímabilið og enginn verði ánægður með hana. Ég hef áhyggjur af því, alveg burt séð frá pólitískum flokkalínum og ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Ég hef áhyggjur af því að sú vinna sem mun fara fram verði byggð á sama grunni og sú vinna sem hefur nú þegar mistekist og hefur nú þegar sýnt okkur að standi ekki nægilega vel með nemendum. Það eru ekki nægilega margir að nýta sér kerfið að margra mati. Kostnaðurinn, lánin og staða ýmissa nemenda innan kerfisins, eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir, sýnir það svart á hvítu. Ég vil því nefna það hér að það væri ekki úr vegi að fyrr en seinna myndi hæstv. ráðherra bjóða þinginu upp í samtal um framtíð námslánakerfisins af því að menntamálin, námslánakerfið, staða námsmanna og háskólamálin verða að vera á dagskrá hér og ég held að við verðum að geta horft aðeins í baksýnisspegilinn og lært af því hvernig hlutirnir hafa gengið síðustu kjörtímabil þar sem breytingar voru unnar þvert á ríkisstjórn og stjórnarandstöðu.

Mig langaði sérstaklega að varpa upp þessari stóru mynd af því að ég held að staðan sé óásættanleg eins og hún er. Hér kemur hæstv. ráðherra með ágætisfrumvarp þar sem er svona verið að staga í, verið að reyna að laga ónýtt kerfi. Það er bara eðlilegt að ráðherra komi strax með þetta miðað við hvernig heildarendurskoðun hefur gengið í gegnum tíðina. En á sama tíma vekur það ákveðnar áhyggjur, ef heildarendurskoðun tekst ekki, að þetta verði síðan námslánaumhverfið til lengri tíma sem við bjóðum nemendum upp á. Og það var ekki síst þess vegna sem ég spurði líka hæstv. ráðherra að því, sem ekki fékkst svar við, hvort við værum að auka flækjustigið í kerfinu. Það er alveg ljóst að þær breytingar sem voru samþykktar, sem ég hef vísað hér nokkrum sinnum til, voru til mikilla trafala fyrir sjóðinn sjálfan. Þær voru mjög flóknar og það tók nokkur ár að innleiða þetta í tölvukerfi stofnunarinnar. Við getum rætt það fram og til baka. En ég hef áhyggjur af því, af því að kerfið er flókið og við erum að reyna að bregðast við, að við gerum það bara enn þá flóknara. Ég velti því fyrir mér hvort það sé upplifunin af þessari breytingu, þ.e. gagnvart niðurfærslunni með styrkinn, af því við erum alltaf að reyna að bregðast við einhverju, reyna að mæta einhverjum hópum í staðinn fyrir að gera kerfið almennara og einfaldara og nýta fjármuni betur og styðja bara stúdenta til náms með gagnsæi og einföldum hætti. En við erum alltaf að reyna að bregðast við hinu og þessu sem kemur fram, sem er að einhverju leyti skiljanlegt í ómögulegu kerfi. En á sama tíma hefur maður áhyggjur af því ef heildarendurskoðunin tekst síðan ekki.

Það eru nokkrir þættir sem ég vil koma inn á, fyrir utan flækjustigið, og ég nefndi í upphafi breytinguna á vaxtaumhverfinu og vona einlæglega að nefndin skoði það mjög vel hvort þetta eigi bara við þann hóp sem raunverulega er verið að grípa eða hvort þessar almennu breytingar til lengri tíma þegar vextir fara nú að lækka séu áhyggjuefni fyrir þann hóp námsmanna þar sem hávaxtaumhverfi verður inni í meðaltalinu. Ég veit að hæstv. ráðherra tekur undir það, miðað við það sem kom fram hér áðan, að það verður að vera alveg skýrt.

Ég held einnig að í þessari umræðu um Menntasjóðinn í heild verðum við að geta velt upp og rætt samhliða hvaða þætti í menntakerfinu við þurfum að ýta betur undir. Hvernig fáum við sérfræðinga heim, hverja erum við að styðja og annað slíkt, getum við búið til ákveðna hvata fyrir sérfræðinga í heilbrigðisstéttum sem læra erlendis þannig að þeir geti komið hér og hvernig getum við búið til hvata til að mennta fleiri í tæknigreinum sem gríðarleg þörf verður á og sem mun bara aukast á næstu misserum vegna gervigreindar, svo eitthvað sé nefnt? Það verður að taka þá umræðu með framtíðaráformum um Menntasjóðinn og þessa heildarendurskoðun sem við stöndum hér enn og aftur frammi fyrir að þurfa að fara í.

Ég veit að hv. allsherjar- og menntamálanefnd mun ræða þessar breytingar og ég ítreka það að ég tel þær ekki alls kostar slæmar. Ég skil viðbrögðin enda unnum við á síðasta kjörtímabili ýmsar tillögur og skýrt kostnaðarmat á því sem þyrfti að gera til að bregðast við núverandi stöðu en það er algerlega ljóst að heildarendurskoðunar er þörf. Ég vil ítreka það sem ég hóf mál mitt hér á varðandi það að þar verðum við að þora að spyrja okkur stórra spurninga. Við þurfum að þora að fara ekki aftur í sama farið sem löggjafarvaldið hefur farið í, kjörtímabil eftir kjörtímabil, og sitja áfram uppi með óásættanlegt námsmannakerfi. Ég vona innilega að hæstv. ráðherra sé tilbúinn í þá umræðu enda verður þingið að spyrja sig gagnrýninna spurninga um það hvernig við gátum samþykkt heildarendurskoðun, hún er unnin hér kjörtímabil eftir kjörtímabil án þess að við séum með stuðningsumhverfi fyrir námsmenn sem við getum verið sátt við.