Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Fyrst ætla ég að biðjast afsökunar á því ef ég hef haft rangt eftir seinna andsvari hér áðan. Það var ekki meiningin. Ég fagna því hins vegar að hv. þingmaður kalli eftir umræðu um þessi mál hér í þingsal og sting upp á ágætisleið, að hv. þingmaður óski eftir sérstakri umræðu við mig um þetta. Ég held að við stöndum kannski frammi fyrir því, og þess vegna erum við nú að hrinda þessum breytingum af stað þó að við ætlum að fara í stærri breytingar, að við höfum kannski gert dálítið óraunhæfar væntingar, og námsmenn jafnvel óraunhæfar væntingar, þegar lögin voru sett vegna þess að við vorum þá í sögulega lágum vöxtum hér á landi sem var auðvitað alveg fyrirsjáanlegt að voru eingöngu vegna þess að hérna voru útgöngutakmarkanir, rof á flutningskeðjum og samfélagið lá niðri. Þess vegna held ég að við eigum að fara í þessa heildarendurskoðun. Hún getur allt eins leitt til minni háttar breytinga eða kollvörpunar á kerfinu og við eigum bara að vera, alveg eins og hv. þingmaður segir, alveg heiðarleg og segja það sem við teljum að þurfi að segja. Ég held hins vegar að þetta þurfi ekki að taka fjögur ár. Ég held við ætlum að gera þetta á ári vegna þess að hér hefur verið unnin góð vinna. Það er tekið mikið af góðum gögnum sem hafa m.a. verið unnin á þeim árum sem hv. þingmaður var í ráðuneytinu. Við byggjum á því eins og öðru.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvaða ávinningur hún telur að felist í því að úthluta þessu bankanna, hvort hv. þingmaður sé þá að leggja til að við markaðsvæðum félagslegan jöfnunarsjóð námsmanna, hvort það væri skynsamlegt, hvort þetta á ekki að vera byggt á öðrum heldur en markaðslegum forsendum sem bankarnir augljóslega þurfa að byggja sitt viðskiptamódel á.