156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:33]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta. Ég held einfaldlega að þann ávinning verði að skoða og þá er ég ekki að tala um að við hættum að hafa námslánin með þeim hætti sem við höfum í dag heldur setjum skýrar reglur og útvistum því verkefni að lána eins og við ákveðum að námslánin verði. Hvað tel ég að geti komið út úr því? Jú, minni yfirbygging. Ég held að bankarnir gætu verið að veita betri þjónustu, en nemendur kvarta sáran undan að fá ekki skýr svör um þær reglur sem gilda, fá ekki skýr svör um hvernig láninu er háttað. Bankar veita afburðaþjónustu af því að þeir eru að tala við sína kúnna og mögulega framtíðarkúnna og það eru bara staðreyndir sem blasa við okkur. En bankarnir fengju ekki frjálsa stöðu með það hvernig námslánum yrði háttað heldur myndi ríkið ákveða hvernig þessi lán yrðu og við myndum láta bankanna útfæra það. Ég held að þá myndum við halda í það að námslánasjóðurinn eigi að tryggja jöfn tækifæri til náms, að við tryggjum hér ákveðið námslánakerfi á sama tíma og við getum bæði veitt betri þjónustu, minnkað yfirbyggingu og nýtt fjármunina sem nú fara í kerfið frekar til að styðja við stúdenta og mæta ýmsum hugmyndum þeirra í stað þess að vera með 20% í kerfinu sjálfu, eins og það er kallað.