156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:35]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti verður að hafa skilning á ávarparuglingi okkar sem helgast af skyndilegum hlutverkaskiptum. Ég held að það sé alveg sjálfsagt mál að vinna alltaf, öllum stundum að því að einfalda þetta kerfi og minnka yfirbygginguna því að auðvitað á umsýslukostnaður ekki að vera mjög verulegur hluti af fjármunum sem eiga að fara í stuðning við námsmenn. Ég held að einkunnarorðin þurfi að vera gagnsæi, þurfi að vera jafnræði og þurfi að vera fyrirsjáanleiki. Ég er ekkert endilega viss um að bankar í samkeppni séu besta leiðin einhvern veginn til þess að það sé, að þeir fari að keppa um kúnna sem eru í rauninni að stíga sín fyrstu skref út í lífið sem sjálfstæðir einstaklingar og eiga auðvitað bara rétt á því að ríkið og stjórnvöld gangist við því að hér er um að ræða fjárfestingu fyrir samfélag sem vill og þarf að auka verðmæti sín ef velmegun á að halda áfram að aukast. Þannig að ég deili ekki endilega sýn hv. þingmanns á að þetta sé leiðin, en það er auðvitað alveg sjálfsagt að skoða það, en ég held að það sé alveg rétt að við eigum öllum stundum að passa upp á að umsýsla sé ekki meiri en hún þarf að vera og að yfirbygging verði aldrei of stór.