Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Takk fyrir að hleypa mér hérna uppi í pontu. Ég þakka hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir ágæta umfjöllun. Það er auðvitað fengur að því að fá fyrrverandi ráðherra málaflokksins að borðinu. Ég er sammála því að það verður ekkert hjá því komist í umræðu um þessi mál — vegna þess að okkur gefst ekkert endilega fjöldi tækifæra til þess að eiga ákveðna almenna umræðu um framtíð menntamála og þar getum við komið að ýmsu. Auðvitað eiga menntamálin og háskólarnir og menntastofnanir okkar almennt að þjóna margvíslegum hlutverkum, hvort sem það er að rækta menningu okkar, tungu eða sögu en svo auðvitað þurfum við að framleiða á færibandið sem menntakerfið er ákveðna dygga starfsmenn framleiðslukerfa okkar. Það verður ekki hjá því komist. Á þessum síðustu og verstu tímum er gervigreind að taka yfir allt og ég þykist vita að hv. alþingismaður hafi veitt því athygli í sínum störfum, m.a. í ráðuneytinu, hvernig horfir á um umgjörð gervigreindar hérna á Íslandi og í samhengi við menntamálin, af því að auðvitað þurfum við að þjálfa upp okkar innviði, okkar kerfi hér. Mér léki því forvitni á að vita hvað hv. þingmanni finnst t.d. bæði í samhengi við þessa framtíð menntakerfisins og gervigreindar á Íslandi af því að maður hefur fengið ábendingar — og kannski myndi einhver saka mann um að fara út fyrir efnið en ég ítreka að svo er ekki — maður hefur fengið ábendingar um að ný ríkisstjórn sé ekki alveg átta sig á alvarleika málsins, að taka þá þróun föstum tökum. Ég þykist vita að hv. alþingismaður hlýtur að hafa innsýn í það á grunni þessa, sem við erum að ræða um, framtíðarsýnar í menntamálum.