156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[16:41]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir greinargott svar og ég er sammála, við þurfum að skoða hvernig við stillum hvatana af í kerfinu af því að á sama tíma og við þurfum sannarlega að mennta fólk í, eins og ég sagði hér áðan, hinum gagnslausu greinum þá er mikilvægt að við höfum augun á boltanum í þessu máli, að vera ekki að missa af stórum tækifærum, missa af stórum greinum vegna þess að við erum einhvern veginn bara að hjakka í sama farinu. Svo er það þannig að á vissum sviðum í háskólanum, er mér sagt, erum við að mennta fólk í dýru námi hér á Íslandi og svo missum við það á einhverjum tímapunkti þegar það fer að sækja sér eitt eða annað framhaldsnám. Við missum það til útlanda og það er auðvitað mjög alvarlegt að við séum að missa fólkið, sem við erum að fjárfesta í að mennta hér, á endanum til útlanda á sama tíma og við þurfum síðan að flytja sérfræðinga í gámum inn til landsins til að vinna störfin. Við verðum auðvitað að fylgjast mjög vel með þessu og ég vænti þess að hæstv. háskólamálaráðherra sé meðvitaður um þessa þróun og hafi augun á henni.

En fyrst maður er með hv. þingmann hér sem hefur sömuleiðis úr sínum fyrri störfum sem háskólaráðherra reynslu af því að vinna með þetta kerfi, af því að hv. þingmaður leggur það m.a. til að skoða hvernig mætti útvista einhverju slíku eða færa þetta til annarra eininga, hvort sem það eru einkareknar einingar eða annað — nú bara þekki ég ekki hvernig útfærsla slíks væri. Gæti hv. þingmaður lýst því í einhverjum meginatriðum og sömuleiðis speglað það mögulega við það sem maður hefur séð? Úti í heimi, t.d. í Bandaríkjunum þar sem hefur verið umfjöllun um þessi námslán, þá hefur maður séð hvernig þau vinda upp á sig í heila báknið og meiri háttar stabba af námslánum og vandræðum sem síðan hljótast af þessu. Eru einhver áhyggjuefni í þessu? En kannski einmitt þetta með útfærsluna á því, hvernig það gæti litið út ef þetta væri fært til annarra eininga. Ef þær væru í einkaatvinnulífi þá væri það meðal þessara kosta sem ég óska eftir að hv. þingmaður lýsi.