Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og af því hann tengir hér umræðu um gervigreind við menntakerfið þá langar mig auðvitað líka að nota tækifærið og hvetja hæstv. ráðherra til allra góðra verka á grundvelli þeirrar aðgerðaáætlunar um gervigreindarmál sem tengist ekki síst menntakerfinu og til að nýta þá vinnu sem þar var unnin til þess að halda áfram, af því að hér erum við í algjörri spretthlaupi við heiminn.
Að seinni spurningu hv. þingmanns. Ég hef aðeins látið skoða svona útfærslu. Það þyrfti auðvitað að gera nánar og meira en það væri alltaf einhver stjórnsýslueining sem færi með ákveðna ábyrgð. Það þarf enn þá að semja úthlutunarreglur og þær reglur sem við setjum um úthlutun námslána af því að hugmyndin er ekki að hverfa frá því að við setjum hér upp stuðningsumhverfi fyrir námsmenn til að tryggja jöfn tækifæri til náms heldur einungis hver fer síðan með verkefnið að þjónusta nemendurna. Það hafa trekk í trekk komið athugasemdir frá stúdentum um þjónustuna og upplifun þeirra af stuðningi við það að fá upplýsingar og geta átt í samskiptum við stofnunina. Síðan myndi þessi stjórnsýslueining þá útvista því að lána og þar gætum við auðvitað — ef ríkisstjórnin ætlar áfram að vera hér með ríkisbanka þá væri kannski ekkert vitlaust að hann tæki það bara að sér á mjög góðum kjörum fyrir ríkið að sinna því verkefni. Þá væru nemendur í samskiptum við banka, annaðhvort hvaða banka sem er á Íslandi eða einhvern ákveðinn banka, varðandi sín námslán, fengju þar betri þjónustu, bæði í öppum og þjónustuverum og annað, og ríkið þyrfti ekki að standa straum af að geta svarað spurningum og verið að veita viðbrögð. Síðan ef nemendur væru að fá sér meiri lán fyrir meira nám, eins og gengur og gerist, þá gætu þau haldið áfram í viðskiptum við þann banka en ekki þurft að leita annað og mögulega fengið betri kjör heldur en gengur og gerist í dag.