Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka framsögu hæstv. ráðherra og málefnalega umræðu um þetta mikilvæga frumvarp. Ég vil beina sjónum að einni af meginbreytingum frumvarpsins til laga um Menntasjóð námsmanna, breytingu á fyrirkomulagi námsstyrkja. Þegar lögin tóku gildi árið 2020 var meginmarkmiðið að tryggja jafnt aðgengi að háskólanámi óháð aðstæðum einstaklinga, m.a. með því að veita þeim sem ljúka námi innan tilgreindra tímamarka námsstyrki. Kerfið markaði breytingu frá fyrra fyrirkomulagi og lagði áherslu á að umbuna námsframvindu með styrkjum í stað þess að bjóða aðeins upp á lán án sérstakra hvatakerfa. Reynslan af þessu kerfi hefur þó leitt í ljós að það hefur ekki nýst nægilega mörgum. Í skýrslu sem lögð var fram á Alþingi í lok árs 2023 kemur fram að umtalsverður hluti lánþega nær ekki að uppfylla skilyrðin til námsstyrks. Þetta eru ekki endilega einstaklingar sem skortir metnað til að ljúka námi. Oftar en ekki eru þetta námsmenn sem mæta aðstæðum sem þeir hafa enga stjórn á, þar á meðal veikindum, aukinni fjölskyldu- eða umönnunarábyrgð eða efnahagslegum þrengingum sem geta seinkað náminu. Þess vegna er í frumvarpinu lagt til að styrkjakerfinu verði breytt á þann veg að stuðningurinn dreifist betur yfir námsferilinn. Í stað þess að námsmaður þurfi að bíða fram til námsloka eftir 30% niðurfellingu á námslánum sínum sem hann fær aðeins ef hann stenst ákveðin tímaskilyrði er nú lagt til að 20% námsstyrkur falli til við lok hverrar annar standist hann lágmarksnámsframvindu og að 10% komi til viðbótar við námslok, ljúki hann náminu innan tilskilins tíma.
Þetta eru ekki bara prósentutölur, þetta eru raunverulegar umbætur á lífi námsfólks. Í fyrsta lagi færist stuðningurinn nær námsmönnum. Þeir fá umbun fyrr, eða eftir hverja önn. Þetta skiptir máli fyrir fólk sem lifir við óvissu, býr við takmarkað fjármagn eða þarf að sjá fyrir fjölskyldu sinni samhliða námi. Fyrirsjáanleiki og reglulegur stuðningur eykur öryggi og getur jafnvel ráðið úrslitum um það hvort fólk haldi námi sínu áfram eða ekki. Í öðru lagi nær stuðningurinn til stærri hóps. Með þessu fyrirkomulagi má gera ráð fyrir að fleiri lánþegar uppfylli skilyrði til að hljóta námsstyrk. Nú þegar eru um 70% lánþega sem hljóta styrk en sjóðurinn hefur frá upphafi gert ráð fyrir að allt að 90% lánþega muni njóta styrks. Með þessum breytingum erum við að færa kerfið nær því markmiði. Að auki hefur þetta fyrirkomulag notið sérstaks stuðnings meðal fulltrúa námsmanna. Það endurspeglar bæði aðstæður og raunverulegar þarfir þeirra sem kerfinu er ætlað að þjóna.
Virðulegi forseti. Við verðum að hafa í huga að aðgengi að háskólanámi snýst ekki eingöngu um inntökupróf eða námsárangur mældan í einkunnum. Það snýst einnig um fjárhagslegt öryggi, fyrirsjáanleika og traust kerfi sem styður námsmenn allan námsferilinn. Þegar einstaklingar vita að þeir fá stuðning jafnt og þétt fyrir það að standa sig í námi, ekki einungis ef allt fer samkvæmt áætlun, þá skilar það sér í betri námsárangri, lægra brottfalli og jafnari möguleikum til náms, óháð aðstæðum. Frumvarpið heldur þó í mikilvæga hvatningu til að ljúka námi innan tilskilinna tímamarka með því að áskilja að 10% námsstyrks falli ekki til fyrr en í lok náms. Þetta er mikilvægt jafnvægi. Kerfið umbunar námsframvindu en viðurkennir líka að námsferlar eru ekki alltaf línulegir. Með þessu frumvarpi er tekið stórt stökk til mikilla bóta er varðar íslensk námslán. Ég treysti því. Með því að dreifa stuðningnum, auka sveigjanleika og byggja á raunverulegum aðstæðum námsmanna erum við að byggja réttlátara og skilvirkara kerfi. Sú áþján sem gamla kerfið hefur valdið mýmörgum námsmönnum svo áratugum skiptir er í besta falli ámælisverð. Hvernig það var uppbyggt eins og fram hefur komið í frumvarpinu — ástæðan fyrir því að fólk treystir sér nú almennt verr til að skuldbindast því.
Mig langar að draga upp raunverulega mynd af því hvernig verðtryggt námslánakerfi okkar hefur leikið fólk sem hefur neyðst til að treysta á það til að mennta sig. Tökum dæmi af ungri konu sem hóf nám árið 2002. Hún hafði ekki annan kost en að taka fullt námslán til að fjármagna menntun sína. Hún stóð sig vel í námi og fékk lánið greitt í lok hverrar annar. Heildarfjárhæð lánsins nam í lokin 4.625.000 kr. Fyrsta afborgun þess var svo árið 2008 eða sex árum seinna. Á þeim tíma var hún orðin móðir með þrjú börn á sínu framfæri og borgaði að auki af verðtryggðum húsnæðislánum. Hún er enn þann dag í dag að greiða af þessu námsláni. Hingað til hefur hún greitt 4.921.000 kr. en samt stendur lánið hennar í 6.200.000 kr. Fyrsta afborgun var 2008 og nú 17 árum seinna, árið 2025, hefur hún greitt tæpar fimm milljónir inn á það. Það stendur engu að síður í ríflega 6 milljónum. Gleymum ekki að húsnæðislánin eru verðtryggð líka. Þegar hún lýkur loks við að greiða námslánið árið 2043, þá orðin sjötug, verður heildarupphæðin sem hún hefur greitt til að geta menntað sig komin upp í u.þ.b. 14 millj. kr. Hún hefur þá endurgreitt námslánið sitt næstum fjórfalt. Það er fullvissa mín að þessi öfluga ríkisstjórn allra landsmanna sem þegar lætur verkin tala fái bæði tíma og svigrúm til að taka þennan mikilvæga málaflokk enn lengra og fella úr gildi úrelt, verðtryggð námslán. Það skortir ekki vilja og getu hjá þeim til þess, svo mikið veit ég. Ég hvet því þingið til að styðja þessa breytingu, afgreiða þessa mikilvægu umræðu fljótt og vel og styðja þannig betur við námsmenn sem eru nú sem áður með ólíkan bakgrunn og búa við ólíkar aðstæður.
Að lokum: Það var talað hér áðan um að það væri ekki ánægja með þetta kerfi. Það skapast ekki almenn ánægja með Menntasjóð námsmanna fyrr en verðtryggð námslán verða felld niður og lán sem standa raunverulega undir nafni sem styrkur verða tekin upp. Ég er þess fullviss að þessi ríkisstjórn, fái hún til þess svigrúm, muni gera sitt til að það verði að veruleika.