Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Ég kem hér upp til að fagna framlagningu þessa frumvarps um breytingar á lögum frá 2020. Menntasjóður námsmanna þarf að vera í sífelldri þróun. Við komumst í rauninni aldrei á leiðarenda á þessari vegferð til að bæta Menntasjóð til handa öllum námsmönnum, til handa öllum landsmönnum, vegna þess að sjóður af þessu tagi þarf að spegla sig eilíflega í þeim breytingum sem verða í samfélaginu en hér eru tekin góð skref í átt að betra samfélagi, í átt að betra menntasamfélagi.
Þetta frumvarp hér er í rauninni menntahvetjandi. Það kveður á um að hér skuli aðeins borgað af einu láni í einu þannig að hér nefni ég þegar tvö framfaramál hvað varðar þetta frumvarp til laga. Það er líka unnið í góðri sátt. Það er ekki alltaf sjálfgefið og námsmenn fagna því, það er ágætiseinkunn til handa þessu frumvarpi.
Meginbreytingin er e.t.v. sú sem fram kemur í frumvarpinu, að þar er lögð til breyting á ákvæðum laganna um námsstyrki þannig að námsmenn fái 20% námsstyrk við lok hverrar annar, standist þeir kröfur um námsframvindu þeirrar annar, og til viðbótar 10% námsstyrk við námslok, ljúki þeir námi innan þeirra tímamarka sem lögin gera ráð fyrir. Með því að fá 20% niðurgreiðslu við lok hverrar annar í stað 30% við námslok er búinn til aukinn sveigjanleiki í kerfið og líkurnar aukast á að lánþegi hljóti styrk til niðurfærslu á höfuðstól lánsins ásamt áföllnum verðbótum. Þetta er til mikilla bóta. Með því að halda eftir 10% þar til í námslok er hvatningunni til að ljúka námi í samræmi við kröfur um námsframvindu viðkomandi prófgráðu haldið áfram inni en með öðrum hætti. Þessu fyrirkomulagi hafa stúdentar kallað eftir og það er meira í átt til þess lánakerfis sem er í Noregi.
Talandi um Noreg, sá sem hér stendur er á þeirri skoðun að í framtíðinni þurfum við að beita Menntasjóði námsmanna í auknum mæli sem félagsjöfnunartæki. Þetta er félagslegur jöfnunarsjóður og það er aldrei nógsamlega vakin athygli á því að svo þarf að vera til þess að sem flestir landsmenn komist til náms, svo að flestir námsmenn komist til háskólanáms hringinn í kringum landið, fólk með hvaða bakland sem er. Þess vegna höfum við Menntasjóð námsmanna af hálfu hins opinbera en vistum ekki námslánakerfið inni í hagnaðardrifnum viðskiptabönkum landsmanna. Þar er einföld ástæða komin fyrir því.
Við þurfum að huga að fleiri þáttum. Námsmenn, sem eru umsagnaraðilar þessa máls, fagna hér norsku leiðinni en það eru aðrar norska leiðir sem vert er að horfa til þegar menntasjóðir eru skoðaðir. Norðmenn fara þá leið að þeir veita námsfólki sem klárar sitt nám auðveldari afborganir af lánum ef það flytur út á land og fjölgar menntuðu fólki í dreifðum byggðum landsins. Ég tel einsýnt að við eigum að fara þá leið á komandi misserum vegna þess að það mun auka byggðafestu um allt land að fá vel menntað fólk út á land, í hinar dreifðari byggðir, í fámennari byggðarlög landsins sem þurfa klárlega á því að halda að vel menntað fólk setjist þar að. Það mun fjölga fjölskyldum úti á landi sem geta ýmist unnið í staðvinnu þar eða fjarvinnu. Ég held að þegar við skoðum frekari breytingar á Menntasjóði námsmanna á komandi misserum munum við þurfa að hafa þetta í huga.
Mig langar að lokum að benda á og endurtaka það sem ég sagði áðan, að Menntasjóður námsmanna þarf að vera í eilífum breytingum á komandi árum svo að hann endurspegli betur samfélagið sem blasir við hverju sinni. Almennt séð vil ég fagna þessu frumvarpi, það er til bóta, en við í þessum þingsal getum bætt það enn frekar á komandi árum svo að það endurspegli þær breytingar sem verða klárlega í samfélaginu á komandi tíð.