156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:00]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Ég vil byrja á að þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fyrir að koma með þetta mál hérna fyrir þingið og sömuleiðis fyrir hans framsögu. Þeim sem hér stendur er þetta mál töluvert skylt. Árið 2020, þegar sá sem hér stendur var varaþingmaður og sat á þingi um töluvert skeið, þá fékk ég þetta mál í fangið frá hæstv. þáverandi menntamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur. Upplagið var að reyna að gera málið betra og það er nú eitt meginstefið hér í þeirri umræðu sem hefur farið hér fram að við erum alltaf að reyna að þróa kerfin til hins betra, sérstaklega fyrir þá sem þurfa að nota kerfin, og farið var af stað með þann þátt sem snýr að ákveðnu hvatakerfi, að stúdentar gætu þá fengið afslátt af greiðslu og var þá miðað við þessi 30%. Nú er hér lagt til, til að aðlaga hlutina, að það verði 20% endurgreiðsla á hverri önn og síðan 10% í lok náms. Það er hið besta mál að við erum alltaf með kerfin í þróun og auðvitað á það sama við árið 2020 og þegar þetta frumvarp sem er til umræðu núna var í vinnslu þá var að sjálfsögðu verið í góðu og þéttu samstarfi við stúdenta þegar málið var unnið til að reyna að ná fram því sem stúdentar eru að sækjast eftir.

Vissulega hefur margt gerst á þessari vegferð frá því að lagt var af stað með Menntasjóðinn; ýmis áföll og breytingar, ég tala nú ekki um verðbólguna sem hefur haft áhrif og síðan virðist færast enn meira í vöxt, og hefur sennilega alltaf verið, að stúdentar vinna ansi mikið með námi og reyna þá að forðast að taka lán og jafnvel held ég að það sé mjög algengt að alla vega þeir stúdentar sem eiga þess kost búi í foreldrahúsum meðan á námi stendur. Þar vil ég aðeins staldra við vegna þess að þá erum við komin að skekkjunni sem um ræðir, þ.e. það eru fyrst og fremst stúdentar sem koma af landsbyggðinni og eiga þess ekki kost að búa í foreldrahúsum eða í ódýru húsnæði sem eru að taka þessi lán. Við þurfum að horfa þá til þess hvernig við aðlögum okkur enn frekar að því og mér finnst þau skref sem eru stigin hér í þessu frumvarpi vera til bóta og jákvæð. Við þurfum sömuleiðis að horfa á það til framtíðar litið, því að hæstv. ráðherra boðaði hér ákveðna kerfisbreytingu eða þá heildarendurskoðun á þessu fyrirkomulagi, að ég held að í hlutarins eðli eigum við bara að stíga frekar minni skref. Við eigum frekar að horfa til þess hvernig við getum gert hlutina betur í staðinn fyrir að kollvarpa því kerfi sem við erum með. Vissulega koma alltaf upp ákveðnir agnúar þegar við vinnum með einhver ákveðin kerfi og það hefur komið hér fram í umræðunni í dag varðandi t.d. bara kostnað við að reka sjóðinn og að það megi vafalítið ná honum niður og gera það einfaldara og gera umhverfi sjóðsins meira aðlaðandi fyrir þá notendur sem hann vilja nota.

En ég vil ítreka það hér, virðulegur forseti, að ég er nú staddur þannig í lífinu að persónulega finnst mér það vera hlutverk samfélagsins að standa á bak við það að mennta stúdenta og fjárfesta í framtíðinni. Ég geld varhuga við því að við horfum til einkaframtaksins þegar kemur að þeim málum og er áherslumunurinn þá kominn hér á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í þeim efnum, sem ég held að eigi nú svo sem fáum að koma á óvart. Það er ekkert óeðlilegt við það að samfélagið kosti til við að mennta þá sem eiga að taka við keflinu og leiða í framtíðinni og það kemur alltaf til með að kosta peninga að ala upp og mennta einstaklinginn. Það hefur stundum verið sagt að það þurfi heilt samfélag til að ala upp eitt barn og við getum útfært það þannig að það þurfi heilt samfélag til að koma góðum einstaklingi út í lífið. Við þurfum þá líka að horfa til þess að það á ekki að vera neitt tiltökumál þó að hlutirnir kosti vegna þess að þetta er fjárfesting til framtíðar sem við erum að leggja í hérna með því að ríkið komi að því að standa straum af kostnaði við lánasjóðinn. Það kom fram í máli hæstv. ráðherra að við þessar breytingar er kostnaðurinn einhverjar 590 milljónir á ári, ef ég hef skilið þetta rétt, sem felst þá fyrst og fremst í því hvernig við tökumst á við vaxtabreytingar miðað við það sem lagt er upp með í upphafi og þar sem tekin er af þessi sveiflujöfnun sem getur átt sér stað við breytingu vaxta. Ég tek sömuleiðis undir með þeim sem hér hafa talað varðandi verðtryggingu á þessum lánum og ég held að við eigum náttúrlega að horfa til þess að þessi lán séu óverðtryggð í grunninn og þar af leiðandi á það kannski að minnka áhættu fyrir viðkomandi lánþega ef einhverjar miklar breytingar verða.

Mig langar aðeins, virðulegur forseti, að koma hér inn á framtíðarmúsík sem snýr að ívilnunum til að fá menntað fólk út á land. Við höfum talað fyrir því og sjálfur hef ég lagt fram þingmál þess efnis t.d. sem snýr að að ívilnunum varðandi dýralækna á landsbyggðinni. Við getum horft til þess og hér var talað um Noreg í fyrri ræðu hjá hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni. Þar er verið að beita þessum ívilnunum trekk í trekk til að laða nýmenntaða einstaklinga til starfa úti á landi. Þetta er mikil áskorun fyrir okkur. Það er mjög mikil áskorun í því fyrir okkur að koma fólki út á land og ég ætla að staðnæmast hér við eina stétt. Það er dýralæknastéttin sem er mjög mikilvæg fyrir okkur og við þekkjum það vel að það hefur verið mjög snúið mál að fá dýralækna út á land. Ég tel að með því að við færum að stíga þessi skref, ekki bara varðandi dýralækna, varðandi starfsgreinar margar hverjar, iðnmenntun sömuleiðis og hvata fyrir einstaklinga til að fara út á land — og við sjáum það í nýsköpunarumhverfinu vítt og breitt í þjóðfélaginu og við getum nefnt dæmi eins og Kerecis og fleiri góð fyrirtæki — myndi það hjálpa mikið til og væri gríðarlega öflug og góð byggðaaðgerð að beita þessum ívilnunum. Ég lít svo á að við séum með verkfærið hér í höndunum þegar við erum að fjalla hér um Menntasjóð námsmanna, að nýta nú sjóðinn á þann hátt að beita honum til þessara ívilnana og til þess að draga fólk út á land. Eins og ég kom inn á áðan í fyrri ræðu þá virðist það vera þannig að þeir sem eru að nýta sér þjónustu Menntasjóðsins séu að stærstum hluta, að mér skilst, stúdentar utan af landi. Nú vil ég taka allan vara, virðulegur forseti, ég er ekki með alveg nýjustu tölur en þetta var þegar ég var að vinna þetta mál á sínum tíma og ég held að það hafi ekki mikið breyst. Þá var ótrúlega stór hópur, mikið hlutfall af þeim sem nýttu sér þessa þjónustu, að taka námslán hjá Menntasjóði námsmanna, sem kom utan af landi.

Það er farið er ágætlega í greinargerð með frumvarpinu yfir það verklag sem var lagt upp með í upphafi, þ.e. það á að endurskoða og það sem ég tel að verið sé að gera í dag er að verið er að endurskoða það sem lagt var af stað með árið 2020 og í greinargerðinni og í lögunum í upphafi var talað um að endurskoða á þriggja ára fresti. Sú skýrsla var nú birt hér síðastliðið vor og farið yfir hana og þar kemur skýrt fram að sjóðurinn hefur ekki uppfyllt þau markmið að tryggja námsmönnum jöfn tækifæri til náms. Það er áskorun og mér finnst hæstv. ráðherra mæta því ágætlega hvað það varðar með því að nálgast það með þessum hætti með því að leggja til þessar breytingar sem koma hér á því að námsstyrkurinn breytist, fer þá í 20% í lok hverrar annar, þ.e. ef viðkomandi stúdent stenst þær kröfur sem gerðar eru til námsframvindu og síðan eru þá 10 prósentin hér í lokin. Auk þess er farið hérna yfir það sem snýr að vaxtakjörum og því um líku og ætla ég ekki að þreyta þingheim neitt sérstaklega með upplestri á því.

Virðulegur forseti. Vissulega er og verður alltaf kostnaður sem leggst á ríkissjóð en tilgangurinn á samt alltaf að vera sá að sá kostnaður sem við leggjum til hverju sinni nýtist vel og ég held að það væri gott fyrsta skref hjá hæstv. ráðherra að kafa ofan í saumana á því hvers vegna í ósköpunum það er svona dýrt að reka þennan sjóð og taka það, því að það kemur skýrt fram hér að það er kvartað yfir viðmóti, stirðleika og öðru þegar kemur að því. Nú svo sem þekki ég það ekki, þetta er einungis það sem hefur komið fram í umræðunni og hefur svo sem heyrst áður, því að mikilvægi þess að veita góða þjónustu er náttúrlega númer eitt, tvö og þrjú og ég trúi ekki öðru en að hæstv. ráðherra geti nú farið vel ofan í saumana á því að reyna að ná niður kostnaði. Það er engan veginn boðleg staða að 20% af heildarfjárhæðum séu að fara í kostnað. Það er engan veginn ásættanlegt og við eigum að nýta þessa peninga mun betur og getum þá nýtt þá sömuleiðis til ívilnana, t.d. til þess að fá menntaða einstaklinga út á land og hjálpa til við að hafa menntaða einstaklinga í öflugum og mikilvægum störfum sem landsbyggðin er að kalla eftir vítt og breitt.

Virðulegi forseti. Ég vil bara að lokum fagna því að hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra komi með þetta þarfa mál fyrir okkur og það hefur verið fróðlegt hér í dag að fylgjast með umræðunni og ég held að við getum öll sameinast um mikilvægi þess hvert við erum að fara þótt okkur greini svo sem á um leiðina. En markmiðin eru, held ég, hjá okkur öllum þau sömu.