Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það sem mig langaði rétt til að impra á er að það er verið að stíga skref í þá átt að auka jafnrétti til náms en þó þannig að við erum kannski að setja ákveðnar krúsidúllur inn í kerfið og ég velti fyrir mér hvað hv. þingmaður segir um að þeir sem þurfa að vinna og þurfa að bjarga sér meira heldur en námslánin bjóða upp á. Er gengið nógu langt gagnvart þeim? Er jafnréttið nógu mikið, að þeir geti menntað sig á við aðra? Þá er ég að hugsa eins og það að þessi tímarammi, er hann of skammur? Þó að það sé kannski þjóðhagslega hagkvæmt að við klárum sem fyrst en er tímaramminn nægur ef við ætlum að huga að jafnrétti til náms?