156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:16]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir góða spurningu. Ég held að í hlutarins eðli þurfum við alltaf að hafa einhvern ramma um það að einstaklingar þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá þessa styrki. Mér finnst verið að veita ákveðinn sveigjanleika þegar kemur að því í þessu frumvarpi og það var svo sem kvartað yfir því í fyrri lögum, sem nú á að fara að fella úr gildi, að það hafi verið of þröngt tekið á því þar og of þröngur rammi. En er nógu langt gengið í þessu? Það verður bara tíminn að leiða í ljós hvað það varðar. Eins og ég kom inn á í minni ræðu þá tel ég að svona fyrirkomulag eins og Menntasjóður námsmanna eigi að vera alltaf í þróun og reyna þá að mæta þeim áskorunum sem samtíminn býður upp á hverju sinni. Ég held að þetta sé bara ágætis fyrsta skref en annars verður tíminn að leiða það í ljós hvort nógu langt sé gengið.