156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:17]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langaði í seinna andsvari að beina spurningunni aðeins að hvötunum. Vantar að mati hv. þingmanns ekki einhverja hvata til að taka ekki námslán fyrir þá sem kannski vilja vinna? Við viljum kannski hvetja ungt fólk til að vera ekki að skuldsetja sig ef það þarf þess ekki. Þegar er verið að gefa ákveðnum hópi pening eða afslátt af námslánum, vantar þá ekki hvata fyrir þá sem ekki taka lán? Mig langar aðeins að vita hvort hv. þingmaður hefur íhugað þetta.