156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:18]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef nú ekki íhugað það að hafa hvata fyrir þá sem hafa ekki áhuga á því að taka lán eða finna sig ekki knúna til þess. Ég held að það sé nú bara yfirleitt jákvætt skref ef fólk getur komist hjá því að taka námslán. Ég hef nú grun um að hvatinn sé yfirleitt sá að fjárhagslegar aðstæður einstaklinga eru misjafnar og þeir aðilar sem þurfa á því að halda og hafa ekki þann fjárhagslega bakgrunn til að geta farið í gegnum nám án þess að taka lán — að mínu mati eigum við kannski ekki að þurfa að hafa eitthvert sérstakt hvatakerfi fyrir þá til að þeir taki endilega lán.

En aftur á móti er hugsunin á bak við Menntasjóð námsmanna sú að þetta er félagslegur sjóður sem stendur á bak við þá sem þurfa virkilega á því að halda. Ef við erum komin með sjóð þess efnis að þeir sem þurfa ekki á því að halda að taka lán — eins og ég veit að hv. þingmaður veit jafn vel og ég að var gert töluvert af á sínum tíma, þ.e. að fólk tók námslán og hafði ekkert með þau að gera, og er svo sem lítið við því að gera, en fólk gerði það vegna þess að námslánin á þeim tíma voru tiltölulega hagstæð. Þá er ég að tala um það sem gerðist hér áður en vextir fóru upp úr öllu valdi. En í hlutarins eðli þá tel ég það óþarfa að við séum að hafa einhverja sérhvata til þess eins að fólk taki ekki lán því að ég trúi því nú tæplega að menn séu að taka lán nema menn þurfi þess.