156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:20]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á frumvarpinu. Ég ætlaði nú að vera með andsvör en ég var allt of lengi að biðja um það þannig að ég endaði með ræðu. En svona er þetta, það tekur mismunandi tíma fyrir fólk að læra. Í mínu tilfelli þá ætlaði ég að spyrja hæstv. ráðherra en missti af því. En eins og ég segi tekur það suma lengri tíma en aðra að læra hlutina og ég vona að hann geti svarað mér í lokaræðu sinni.

Spurningin mín er — og ef ég tek sjálfa mig sem dæmi þá tók það mig tíu ár að klára menntaskóla og ég ætla ekki segja ykkur hvað það tók mig mörg ár að klára háskólann. En ég var ekki undanþegin reglunum. Ég hafði ekki rétt á námsstyrk. Fólk með annað móðurmál en íslensku eða fólk af erlendum uppruna hefur ekki aðgengi að þessum styrk, hvort sem það eru 10, 20 eða 30%. Það tekur okkur aðeins lengri tíma að klára námið og það er ekki tekið tillit til þess. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra ef hann getur svarað.

Svo ákvað ég að námi loknu að stofna eigið sprotafyrirtæki og fara í nýsköpun og verðmætasköpun og ég spyr hvort gert sé ráð fyrir því að gefa frumkvöðlum framtíðar, nemendum sem eru að fara að stofna sprotafyrirtæki, lengri tíma fram að afborgunum vegna námslána; hvort þessir 12 mánuðir eða 18 mánuðir eru nóg. Það tekur mörg ár að setja sprotafyrirtæki af stað og gefa þeim svigrúm til þess að skapa verðmæti.

Ég ætlaði ekki að vera með ræðu en það er bara þetta sem mér liggur á hjarta og ég vona að hæstv. ráðherra geti svarað því.